Á framtíðina fyrir sér!
Briard-tíkin sem varð besti hundur tegundar náði að heilla Frank.
„Hún er aðeins 15 mánaða og ég held að hún eigi eftir að vera sigursæl
þegar hún fær meira sjálfstraust í hringnum.“ Hann var ekki jafn hrifinn
af samoyed. „Ég varð fyrir vonbrigðum með þá hunda sem ég dæmdi.
Þeir voru of lágfættir og þungir. Samt sem áður held ég að tíkin úr
ungliðaflokki eigi eftir að þroskast vel og eiga góða framtíð.“
Stórglæsilegur corgi
Besti hundur tegundar í bulldog var í góðu formi að sögn Frank
og hreyfði sig vel. „Öldungurinn var einnig mjög fallegur. Af mjög
góðri tegundargerð, með fallegt höfuð og með góðan afturpart.“
Frank var mjög hrifinn af besta hundi tegundar í corgi sem sigraði
tegundahóp 1. „Stórglæsilegur hundur sem var af fullkominni
tegundargerð og miklum gæðum.“
C.I.B. ISCh Anyka Bootylicious Babe
Siberian husky
Eigandi: Örn Eiríksson
Ræktandi: Mrs S Baker
Úrslit sýningar
Frank dæmdi keppnina um besta ræktunarhóp dagsins og sagðist
hafa verið sérlega hrifinn af tveimur hópum. „Ég var mjög hrifinn af
vorsteh-hópnum og afghan hound-hópnum sem hefðu báðir getað
unnið. Ég vil óska ræktendum þessara hópa til hamingju.“
Í úrslitum tegundahóps 1 sagði Frank corgi-hundinn verðugan
sigurvegara. „Ég hélt að briard-tíkin yrði honum „ógn“ en með meiri
reynslu og sjálfstrausti mun hún veita öðrum hundum harða keppni.“
Frank sagðist einnig hafa verið hrifinn af schäfer-hundinum.
Öldungarnir voru margir hverjir í frábæru líkamlegu ástandi að sögn
Frank sem fannst einkar gaman að dæma þá. „Öldungarnir eru stolt
eigenda sinna. Ég valdi sex frábæra öldunga úr hópnum og var mjög
hrifinn af þeim öllum.“
Frábærir ungir sýnendur
Frank dæmdi yngri og eldri flokk ungra sýnenda og var mjög ánægður
Besti hvolpur sýningar lau. 4-6 mán 1. sæti
Amazing Gold Hamingju Perla - Golden retriever
Eigandi: Kristjana Jónsdóttir
Ræktandi: Kristjana Jónsdóttir
með heildina og sagði hann að Ísland „ræktaði“ greinilega fallegar,
ungar stúlkur sem væru frábærir sýnendur. Frank sagði að góður ungur
sýnandi ætti að vera yfirvegaður og náttúrulegur. „Maður á helst aldrei
að taka eftir góðum sýnanda, hundurinn á alltaf að vera aðalatriðið.“
Hann var mjög hrifinn af stúlkunni sem sigraði yngri flokkinn en hún
sýndi chow chow af mikilli færni. „Í eldri flokki valdi ég fjóra sýnendur
sem allir hefðu getað sigrað. Það voru einungis örlítil smáatriði sem
gerðu útslagið. Ég myndi treysta þeim öllum fyrir mínum eigin hundum,
það er ekki spurning!“
Nýtt blóð nauðsynlegt
Aðspurður um ráð fyrir íslenska hundamenningu sagði Frank að
við þyrftum nýtt blóð í sumum tegundum til að ná fram hinni réttu
tegundargerð. Það myndi hjálpa stofninum og genafjölbreytileikanum.
„Farið til útlanda og horfið á tegundina ykkar í harðri samkeppni þar
sem margir hundar eru skráðir til leiks og skoðið sérstaklega hina réttu
tegundargerð.“
22
Besti hvolpur sýningar lau. 6-9 mán 1. sæti
Eldhuga Driving Miss Daisy
Amerískur cocker spaniel
Eigandi: Dace Liepina
Ræktandi: Bryndís Pétursdóttir