Besti öldungur sýningar
Papillon
C.I.B. FINCh FRCh GIBCh MONCh WW-12
Connection I Know Nothing
Eigandi: Ásta María Guðbergsdóttir
Ræktandi: Vesa Toivanen
Hún dæmdi nokkrar tegundir í tegundahópi 9, þar á meðal cavalier king
charles spaniel og var ánægð með nokkra þeirra en yfir heildina fannst henni
ýmislegt vanta. „Stærsta vandamálið var „pigment“ sem marga vantaði. Í staðli
tegundarinnar stendur að nef eigi að vera svart en mjög margir voru með bleik
nef.“ Lhasa apso voru nokkuð „venjulegir“ að hennar mati en besti hundur
tegundar sýndi sig vel, var af góðri stærð og í réttu jafnvægi. Rakkinn var
nokkuð góður en höfuð hans var ekki hennar „tebolli“. Annika dæmdi nokkra
poodle-hunda sem voru af mjög misjöfnum gæðum. „Mér fannst leiðinlegt að
sjá poodle-hunda sem voru rakaðir niður sem er ekki æskilegt fyrir tegundina.
Suma vantaði rétta skapgerð en poodle-hundar eiga að vera opnir og glaðir.
Ég var hins vegar mjög hrifin af bæði miniature poodle-tíkinni, sem sigraði
tegundahóp 9 og toy poodle-rakkanum.“
Schäfer í góðu vinnuhundaformi
Annika dæmdi schäfer sem voru margir hverjir í góðu formi en sumir þó örlítið
of mjóir, að hennar sögn. „Mér fannst gaman að sjá hversu sterkir litirnir voru
í feld þeirra, margir voru í mjög góðu vinnuhundaformi og flestir með frábæra
skapgerð. Ég var mjög ánægð með bestu hunda tegundar.“
Labrador retriever-hundarnir voru dæmdir af Anniku en hún viðurkenndi
að hafa verið áhyggjufull fyrir sýninguna því vanalega eru um fjórir til fimm
sem henni finnst góðir. „Ég var ánægð með heildargæðin og fannst tíkurnar
almennt betri en rakkarnir. Besti hundur tegundar var ekta labrador, með góðar
hreyfingar, í jafnvægi, hvorki ýktur né of mikill og fullfær um að sinna vinnunni
sem ætlast er til af tegundinni. Hann var einnig með rétta skapgerð fyrir
tegundina, glaður en ekki æstur. Besta tík tegundar heillaði mig líka og var með
marga góða kosti.“
„Ekta spaniel“
Tegundahópur 1 – 1. sæti
Schäfer, snögghærður
NLW-15 ISShCh
Kolgrímu For Your Eyes OnlyHólm
Eigandi/ræktandi: Sirrý Halla Stefánsdóttir
Besti hundur tegundar í amerískum cocker spaniel var „ekta spaniel“ að sögn
Anniku, með góða líkamsbyggingu, hreyfingar og í góðu formi. Hún dæmdi
einnig nova scotia duck tolling retriever og var mjög hrifin af besta hundi
tegundar sem var af réttri tegundargerð, í góðu formi og hreyfði sig eins og
tegundin á að gera. Einnig var litaskiptingin falleg og skapgerðin eins og best
verður á kosið.
Bestu hundar sýningar í 1. og 2. sæti, ameríski cocker spaniel-rakkinn og
miniature poodle-tíkin, voru dæmdir af Anniku og var hún mjög sátt með
árangur þeirra.
Annika tók fram að sýnendur væru almennt mjög góðir á Íslandi og sýndu
hundana á „eðlilegan“ hátt. „Ungu sýnendurnir ykkar eru frábærir og eru svo
eðlilegir þegar þeir sýna. Þannig á það að vera!“
„Fékk tár í augun“
Leni Finne frá Finnlandi var himinlifandi með frábært starfsfólk í hringjum,
stemninguna og hve vel sýningin gekk fyrir sig.
Tegundahópur 2 – 1. sæti
Dobermann
ISShCh RW-15 Embla Altobello
Eigandi: Ómar Unnarsson
Ræktandi: Malbasa Dejan
Hún dæmdi nokkrar tegundir í tegundahópi 1 og var almennt sátt við gæði
welsh corgi pembroke-hundanna. „Australian shepherd voru margir hverjir
góðir en öldungstíkin stóð upp úr hjá mér þó hún hafi ekki verið valin besti
hundur tegundar. Hún var 10 ára og hreyfði sig eins og draumur en ég fékk tár
í augun að sjá í hve góðu formi hún var. Hún var ef til vill ekki með fallegasta
höfuðið, enda breytist það með árunum en hún var æðisleg.“ Border collie
voru, að hennar mati, af misjöfnum gæðum sem og schnauzer. „Ég dæmdi líka
miniature pincher og því miður þurfti ég að gefa þrjú núll þar sem þeir voru allt
of stórir miðað við tegundarstaðalinn. Eigendurnir tóku þessu þó vel sem kom