annað sæti í tegundahópi 8. „Þetta var tík af frábærri tegundargerð sem gæti
unnið hvar sem er í heiminum.”
Igor var ánægður með pug-hundana sem hann dæmdi á sunnudeginum. „Þetta
voru margir hundar af miklum gæðum sem hlýtur að boða gott fyrir tegundina
í framtíðinni.”
Í tegundahópi 2 fannst Igor dvergschnauzer-hundarnir skara fram úr. Einnig
sagðist hann hafa verið mjög hrifinn af st. bernharðshundinum sem var í fyrsta
sæti. Tegundargerðin væri rétt og hann væri greinilega heilbrigður og hreyfði
sig vel. Honum fannst dobermann-tíkin í öðru sæti einnig góður fulltrúi sinnar
tegundar.
Igor sagðist hafa verið hrifinn af afghan hound-rakkanum sem hann valdi í
fyrsta sæti í tegundahópi 10. Þetta væri glæsilegur hundur sem hefði sýnt sig
vel. Hinir hunda