Dagur á hundasnyrtistofu
Höfundur og ljósmyndir: Anja Björg Kristinsdóttir
Það er líf og fjör á hundasnyrtistofum landsins en þær eru þó
nokkrar talsins, aðallega á höfuðborgarsvæðinu. Hundaeign
landsmanna fer vaxandi og þörf fyrir hundasnyrtingu eykst
með hverju ári. Mikil örtröð er á stofum landsins fyrir sýningar,
í desember og á sumrin. Einna algengast er að hundar séu
rakaðir stutt, sérstaklega þeir sem eru með síðari feld ef þeir
eru ekki sýndir á sýningum. Þeir eru klipptir á ýmsa vegu, allt frá
gæludýraklippingum yfir í sýningasnyrtingar en það er misjafnt
eftir tegundum, eins og gefur að skilja. Tískustraumar finnast í
hundasnyrtingum, eins og öðru, og hafa klippingar þróast með
árunum og breyst þó sumar tegundaklippingar séu alltaf eins.
Það er ekki aðeins boðið upp á
klippingar á hundasnyrtistofum landsins. Fólk getur litið inn með hunda sína
og látið klippa klær þeirra en fjölmargir
eigendur treysta sér ekki til að klippa
sjálfir og nýta sér því þessa þjónustu. Að
klippa klær reglulega er mjög mikilvægt.
Sumir hundar, þá aðallega þeir sem eru
stærri og þyngri, eyða klónum sjálfir
nokkuð vel í göngum en samt sem
áður er mikilvægt að klippa reglulega
af þeim. Flestir smærri og millistórir
hundar gera það ekki á sama hátt. Því
er mikilvægt að klippa klærnar eða
fara með hundinn á hundasnyrtistofu
einu sinni í mánuði að jafnaði. Misjafnt
er milli hunda hve ört þarf að snyrta
klærnar. Ef þær verða of langar veldur
það miklum óþægindum fyrir hundinn
og hann fer að stíga niður á rangan
hátt og breyta göngulaginu sem getur
haft slæm áhrif á liði. Í sumum tilfellum
verða klærnar svo langar að þær vaxa í
hring og inn í þófa hundsins sem veldur
miklum sársauka og oft sýkingu. Eftir því
sem klærnar verða lengri, vex kvikan
lengra fram og verður þá erfiðara að ná
þeim í rétta lengd. Ef kvikan nær langt
fram má reyna að klippa klærnar mjög
ört til að kvikan styttist örlítið í hvert
skipti.
Best er því að venja hvolp nógu
snemma á að snyrta klærnar og reyna
að komast hjá því að klippa of langt til
að gera hvolpinn ekki hræddan. Gott
er að hafa blóðstoppandi duft ef slíkt
óhapp verður. Æskilegast er að klippa
nógu lítið í einu til að komast hjá því að
klippa í kvikuna og líta inn í klónna hvort
kvikan nálgist. Í kvikunni verður innviði
klóarinnar mýkra og blautara (meira líf)
en þá er best að hætta að klippa. Ekki
má gleyma þumalklónni sem er staðsett
á innanverðum framfæti. Gott er líka að
24 · Sámur 3. tbl. 42. árg. desember 2015
Eigandi þessa hunds stóð sig ekki í stykkinu
og gríðarlegar flækjur mynduðust sem voru
rakaðar af í heilu lagi!
klippa hárin, sem vaxa á milli þófanna,
því þar festast óhreinindi og hundarnir
renna frekar.
Hvernig ætli dæmigerður dagur á
hundasnyrtistofu sé? Sumir hundarnir
eru fastakúnnar og aðrir koma í fyrsta
sinn. Þegar hundurinn kemur á stofu
er byrjað á að skoða stöðuna á feldi
hundsins, því sumir eigendur gera sér
ekki grein fyrir því hvort hundurinn
sé flæktur og greiða jafnvel einungis
yfirborðið. Þar af leiðand H0