mannfólkinu. Hundarnir veiddu með því
að fara inn í lundaholur og draga út úr
þeim lifandi fugla. Einnig klifruðu þeir í
sjóklettum og sóttu egg úr hreiðrum.
Hundarnir hafa einstaka hæfni við að
bera egg án þess að brjóta þau. Kjöt af
lundafuglinum var notað til manneldis
og fiður og dúnn fyrir sængur. Þetta
var mikil útflutningsvara og notagildi
hundanna gerði þá mjög verðmæta.
Um 1850 fóru menn að fanga
lundafuglinn með netum og háfum.
Þá hvarf hin mikla þörf fyrir hundinn. Í
Måstad á Værøy, þar sem tenging fólks
við umheiminn var lítil, hélst hefðin um
að halda lundahund og má segja að
einangrunin hafi bjargað tegundinni.
Elanor og Wilhelm F.K. Christie frá
Hamri fengu senda nokkra hunda þaðan
á millistríðsárunum og komu þau upp
um 60-70 hundum.
Áður, árið 1925, hafði Norðmaðurinn
Sigurd Skaun einnig lagt til ræktunar
hundanna.
Í seinni heimsstyrjöldinni felldi hundaæði nærrum því alla hunda á Mastad
og voru því fengnir þangað aftur hundar
frá Hamri. Veiran barst einnig austur
síðar og um 1950 voru mjög fáir hundar
til. Elanor Christie gerði þá átak og fékk
hún fimm hunda senda frá Mastad. Hún
fékk fleiri í lið með sér og björguðu þau
tegundinni.
Pysja og Prófastur eiga auðvelt með að klífa kletta. Ljósm. Sólrún Lilja Ragnarsdóttir.
Lundahundar í nútímanum
Í dag eru rúmlega 500 hundar í Noregi,
1000 hundar í heiminum og tveir eru
hér á Íslandi. Tegundinni er bjargað
en hundum þarf þó að fjölga til að
tryggja henni örugga framtíð. Norska
hundaræktarfélagið er að vinna gott
starf við að verja sína tegund og tryggja
heilbrigði hennar. Uppi eru margar
kenningar um uppruna lundahundsins
fyrir staðfestar heimildir og er ein þeirra
sú að þeir eigi rætur að rekja til hunda
frá síðasta jökulskeiði og séu því Canis
forus en ekki Canis Familiaris eins og
þeir hundar sem menn halda í dag.
Lundahundur er frábær félagi, heimakær, geltir lítið, hefur vakteðli og finnst
gott að kúra hjá fólki. Þessir hundar eru
snillingar í afslöppun þrátt fyrir að vera
mikil vinnudýr og eru forvitnir, gáfaðir
og þrjóskir. Skemmtilegt og einstakt
eðli hundanna er ríkt. Þeir eru meðal
annars notaðir til að fækka mávum við
flugvelli með því að safna eggjum og
hafa þannig jafnvel bjargað mannslífum.
Margir hverjir eru lunknir við að veiða
mýs og rottur, þjálfaðir í dansi, starfa í
heimsóknum á vegum Rauða krossins,
nokkrir í sporleit og skotveiði, aðrir í
hundafimi og hefur fólk jafnvel þjálfað
þá til að sækja egg í hænsnakofa.
Lundahundar á Íslandi
Eriksro Bright Prófastur og Eriksro My
Puffin Pysja eru fyrstu ættbókarfærðu
Á hverjum fæti hefur lundahundur sex tær. Á framfótum eru fimm þríliða tær og ein tvíliða, en á afturfæti eru fjórar þríliða tær og tvær tvíliða.
Ljósm. Anneli Rosenberg.
12 · Sámur 3. tbl. 42. árg. desember 2015