mikla hræðslu eða með Beech ef hann sýnir merki um
yfirráðasemi og grimmd. Gott er að blanda Rock Water
við Oak ef hundurinn er mjög vanafastur og gengur á
sjálfan sig vegna þess. Ef hundurinn verður uppgefinn
vegna hegðunar sinnar má blanda Rock Water við Olivedropana og við Walnut ef auka þarf aðlögunarhæfni, til
dæmis vegna breytinga á lífsháttum.
Scleranthus
Þessir dropar virka á ófyrirsjáanleika og ójafnvægi og
koma á stöðugleika og jafnvægi.
»» Fyrir hunda sem eru með ófyrirsjáanlegt skapferli,
stundum lýst af eigendum sínum sem „geðklofa“.
Geðslag þeirra sveiflast öfganna á milli. Stundum
öruggir en í annan tíma feimnir. Stundum mannelskir
en stundum árásargjarnir, hlýðnir einn daginn en
óhlýðnir þann næsta. Borða yfir sig en vilja svo ekkert
borða.
»» Fyrir hunda sem eru lengi að ákveða hvar þeir eigi að
leggjast. Þeir vafra um og máta hina og þessa staðina
áður en þeir ákveða að leggjast niður og hvílast.
»» Fyrir hunda sem þjást af sjúkdómi sem er óútskýrður
og með mismunandi einkenni, til dæmis stundum
harðlífi og stundum niðurgangur. Hundurinn vill
engan mat eða óendanlega mikinn mat. Einkenni sem
stundum hverfa en koma svo aftur. Heilsan er ýmist
góð eða slæm, hún sveiflast öfganna á milli.
»» Fyrir hunda sem virðast vera áttavilltir eða ruglaðir og
reika um stefnulausir.
»» Fyrir hunda sem virðast fá störu, sjá ofsjónir eða heyra
ofheyrnir. Gelta út í loftið að einhverju sem enginn
sér eða heyrir til. Þeir geta líka sleikt sig eða nagað af
áfkafa.
»» Fyrir hunda sem eru með vandamál í innra eyra og
þjást af jafnvægisleysi.
»» Fyrir hunda sem eru bílveikir.