Alþjóðleg sýning HRFÍ 7.-8. september
Alþjóðleg hundasýning HRFÍ var
haldin helgina 7.-8. september og
voru tæplega 700 hundar af 80
hundategundum skráðir til leiks.
22 ungmenni tóku þátt í keppni
ungra sýnenda sem fór fram
6. september.
Dómarar að þessu sinni voru
Paolo Dondina frá Ítalíu,
Jo Schepers frá Hollandi,
Saija Juutilainen frá Finnlandi,
Yolanda Berdugo frá Ísrael,
Jussi Liimatainen frá Finnlandi og
Laurent Heinesche frá Lúxemborg.
Besti hundur sýningar 2. sæti
ISCh RW-13 Tíbráar Tinda Pink Lotus
Tíbet spaniel
Eigandi/ræktandi: Auður Valgeirsdóttir
Besti hundur sýningar 1. sæti
ISCh Svartwalds For Those About to Rock, Dvergschnauzer, svartur
Eigendur: María Björg Tamimi & Lára Bjarney Kristinsdóttir
Ræktandi: María Björg Tamimi
Besti hundur sýningar 3. sæti
Leynigarðs Lexía
Labrador retriever
Eigendur/ræktendur: Guðlaug Gísladóttir &
Sigrún R. Guðlaugardóttir
Höfundur: Auður Sif Sigurgeirsdóttir
Ljósmyndir: Ágúst Ágústsson
Unga fólkið hæfileikaríkt
Paolo Dondina frá Ítalíu var mjög ánægður með sýninguna,
stærð hringjanna, starfsfólkið og sýningarsvæðið sjálft.
Einnig minntist hann á íþróttamannslega framkomu
sýnenda. ,,Mér fannst frábært að sjá marga áhugasama
sýnendur af ungu kynslóðinni sem sýndu alla hunda svo
vel. Í mörgum löndum er þetta vandamál, unga fólkið er
í minnihluta og framtíðin í hundasportinu þar af leiðandi
ekki svo björt. Þið eruð svo sannarlega heppin með unga
fólkið ykkar.”
Hann tjáði sig lítið um þær tegundir sem hann dæmdi
Besti hundur sýningar 4. sæti
RW-13 Paradise Passion Hot Diva
Silky terrier
Eigandi: Ingibjörg Salóme Sigurðardóttir
Ræktandi: Elísabet Kristjánsdóttir
og sagðist stundum hafa þurft að vera nokkuð strangur
í dómum til að skera úr um góðu hundana og bestu
hundana. ,,Þegar ég dæmi vil ég að hundarnir séu eins
nálægt tegundarlýsingunni og mögulegt er.” Hann sagði
greinilegt að fólk vandaði sig þegar kæmi að innflutningi
og sagðist hafa séð nöfn innfluttra hunda af mjög góðum
línum í sýningarskránni eftir sýninguna.
Stemningin frábær
Óhætt er að segja að Paolo sé einn af reyndustu dómurum
heims en hann hefur dæmt úrslit um besta hund sýningar
á stærstu hundasýningum heims. Sem dæmi má nefna
Crufts í Bretlandi, Westminster í Bandaríkjunum og
Eukanupa Dog Challenge. Það kom í hans hlut að dæma
Sámur 2. tbl. 38. árg. september 2014 · 33