Höfundur: Lísa Bjarnadóttir, dýralæknir
Töluverð fjölgun hefur orðið á tilfellum á Íslandi þar sem blóðmítlar
(e. ticks) hafa fundist á hundum. Í langflestum tilvikum hefur verið
um ixodes ricinus að ræða sem þó hefur ekki verið talinn landlægur
á Íslandi heldur hefur hann borist hingað með farfuglum. Hér á landi
er hins vegar náskyld tegund landlæg, þ.e. lundalúsin svokallaða,
(ixodes uriae) sem lifir á sjófuglum. Lundalúsin hefur einnig fundist á
hundum en erfitt getur verið að þekkja tegundirnar í sund r. Þessari
u
grein er ætlað að fræða hundeigendur örlítið um þennan „vágest“,
mögulega smithættu af honum og hvernig megi forðast hann.
Hvað eru blóðmítlar?
Blóðmítlar eru sníkjudýr af ætt
köngulóa. Til eru fjölmargar tegundir
af mítlum en þeirra algengust er
ixodes ricinus. Eins og nafnið ber
með sér eru mítlarnir blóðsugur,
það er þeir sjúga blóð úr hýsli sínum
með því að festa sig við hann og
bora sérstöku munnstykki sínu inn í
gegnum húðina. Um leið framleiðir
mítillinn eins konar sement í
kringum munnstykki sitt sem gerir
það að verkum að erfitt getur verið
að fjarlægja hann af hundinum. Sé
hann hins vegar látinn óáreittur sýgur
hann blóð í að minnsta kosti 7 daga
þar t [[