Sandell í símann og spurði hana að
gamni hve lengi hún þyrfti að bíða
eftir standard poodle-hvolpi frá
henni. Fimm mínútum seinna var
hún komin með lista af hundum
sem voru ýmist í Svíþjóð eða á
leiðinni þangað ásamt plönuðum
gotum til að velja úr. ,,Charlotte
sagðist líka vera með tík sem væri
svolítið villt en hana langaði að
halda inni í ræktuninni. Tík sem
með réttum sýnanda væri ,,winner”.
Ég þurfti ekki að hugsa mig tvisvar
um og ákvað að taka hana.“
Bonnie og Jackson
Multi Ch. Multi Winner Huffish Made For Headlines „Bonnie“ sigraði tegundahóp 9 og endaði sem 4. besti
hundur sýningar á stórri sýningu í Svíþjóð.
Ræktunin
Inya Dreams er ræktunarnafn Sídu
eins og áður sagði og ræktar hún
chinese crested og er nýbyrjuð
að rækta poodle. Hún hefur náð
frábærum árangri með hundana
sína á sýningum og segir árangurinn
liggja í þeirri vinnu sem á sér stað
utan
sýningarhringjanna.
,,Til
að ná árangri skiptir gríðarlega
miklu máli að vera raunsær og
heiðarlegur, sérstaklega við sjálfan
sig. Maður verður að sætta sig við
þá staðreynd að allir hvolpar séu
ekki stjörnur en hafa í huga að þeir
verði frábærir heimilishundar fyrir
ástríkar fjölskyldur og einstaklinga.”
Alveg síðan Sída fékk áhuga á
ræktun hefur hún gefið sér góðan
tíma til að fara út á sýningar, tala
við reynda ræktendur og kynna
sér málin vel. Hún segir skoðanir
hennar og áherslur hafa breyst
með tímanum eftir því sem bættist
í reynslubankann. ,,Svo verðum
við líka að hafa í huga að þegar við
ræktum hunda erum við að eiga
við náttúruna og þar af leiðandi er
erfitt að segja til um hver útkoman
verður. Það er hægt að gera allt
rétt ,,á pappír” með því að spá og
spegúlera og liggja yfir ættbókum en
samt verður útkoman ekki eins og
maður hafði hugsað sér eða vonast
eftir.” Sída segir að alltaf sé hægt
að gera betur og að ræktendur ættu
að hafa það í huga þótt hundunum
hafi gengið vel á sýningum, verið
heilsuhraustir og gleðigjafar á
sínum heimilum. Orðatiltækið
,,betur má ef duga skal” eigi vel við.
,,Samkeppnin hér í Svíþjóð er mjög
hörð og það þýðir ekkert annað en
að halda sér á tánum. Það er ekki
nóg að hundarnir séu góð eintök
sinna tegunda heldur verða þeir að
vera í frábæru líkamlegu ástandi og
vel sýndir ef árangur á að nást.”
Poodle heillaði
Ekki er langt síðan að poodle kom
inn á heimili Sídu en tegundin
hefur alltaf heillað hana. ,,Þetta
eru vinnuglaðir og skemmtilegir
hundar með FULLT af feld! Ég
fékk mér ekki poodle fyrr vegna
þess að ég kunni ekki að klippa
þá. Ég ætlaði sko ekki að standa
í allri þessari feldvinnu til að
hafa hundinn svo illa klipptan!”
Einn daginn var Sída að spjalla
við poodle-ræktandann, Charlotte
Umrædd tík, Multi Ch. Multi Winner
Huffish Made For Headlines
„Bonnie“, er nú margfaldur meistari
og hefur nokkrum sinnum verið
valin besti hundur sýningar á
sérsýningum fyrir poodle. Hún er
ein af sigursælustu poodle-tíkum
á Norðurlöndunum! Árið 2013
var svo sannarlega frábært en hún
endaði sem stigahæsti standard
poodle-hundurinn í Svíþjóð! Þegar
þetta er skrifað á hún von á sínu
fyrsta goti.
Sída hefur fengið nýtt ,,verkefni”,
standard poodle-rakkann, Huffish
American Sinner eða ,,Jackson”.
,,Hann kom til mín í janúar og
hefur aðeins verið sýndur á völdum
sýningum. Hann er nú þegar orðinn
danskur og sænskur meistari og
hefur unnið tegundahóp 9. Ég vona
að þetta sé bara byrjunin. Hann
verður tilbúinn í slaginn á næsta ári
svo við skulum sjá hvað setur.”
Að lokum segist Sída hiklaust mæla
með því að flytja til útlanda og
upplifa hundalífið erlendis. ,,Ef fólk
vill víkka út sjóndeildarhringinn, fá
nýja sýn á hundarækt, er tilbúið að
vinna og leggja á sig það sem þarf,
þá mæli ég hiklaust með því.
Árangur kemur ekki af sjálfu sér,
maður uppsker því sem maður sáir.”
Sámur 2. tbl. 38. árg. september 2014 · 15