„Árangur kemur ekki af sjálfum sér,
maður uppsker því sem maður sáir“
Höfundur: Auður Sif Sigurgeirsdóttir
Sigríður Ingadóttir eða Sída, eins og hún er kölluð, hefur átt góðu gengi að fagna í hundaheiminum í Svíþjóð
og á Norðurlöndunum. Sída er búsett í Svíþjóð en hún flutti þangað árið 2008. Hún hóf ræktun sína á chinese
crested á Íslandi undir ræktunarnafninu Inya Dreams og nutu hundar frá hennar ræktun mikillar velgengni á
sýningum hérlendis sem hélt svo áfram í Svíþjóð. Hún á og rekur fyrirtækið, Groom It, sem sérhæfir sig í feldvörum
fyrir hunda. Þar sem Sída hefur náð gífurlega góðum árangri á erlendri grundu lék Sámi forvitni á að vita meira
um þessa kraftmiklu ungu konu og hundalífið í Svíþjóð.
Tíkin sem breytti öllu
Sída var unglingur þegar hún fór
,,í hundana” en þá eignaðist hún sinn
fyrsta hreinræktaða hund, yndislega
og ljúfa schäfer-tík og var ekki aftur
snúið. ,,Smám saman vaknaði áhugi
hjá mér á sýningum og þjálfun
og tók ég mín fyrstu skref með
dobermann-tík úr einu af fyrstu
gotunum sem fæddust á Íslandi.”
Hún var búin að kynna sér málin vel
áður en hún tók dobermann-tíkina
að sér og var komin í samband við
traust fólk í tegundinni. ,,Þessi tík
átti eftir að breyta öllu og koma
mér á bólakaf í hundana. Hún varð
mín eftir dálitla pressu frá mér á
ræktandann sem ætlaði að halda
henni sjálfur. Saman lærðum við að
vera ,,sýnandi og sýningarhundur”
og ég fór líka með hana í hlýðni,
sporaþjálfun, hundafimi og ég
hefði ekki getað hugsað mér betri
heimilishund.“
Tímaskekkja á Íslandi
Aðspurð segir Sída hundalífið í
Svíþjóð allt öðruvísi en á Íslandi og
talar um að ákveðin tímaskekkja sé á
Íslandi þegar kemur að hundahaldi.
,,Það er svo margt á Íslandi sem er
Sída og Jackson á Pudelnationalen í Svíþjóð 2014 þar sem Jackson var sýndur í fyrsta skipti í meistaraflokki.
Hann sigraði flokkinn og endaði sem 3. besti rakki í mjög harðri samkeppni. Ljósm. Yvonne Mukkavaara.
Sámur 2. tbl. 38. árg. september 2014 · 13