Íslenskur ræktandi
Höfundur: Inga Björk Gunnarsdóttir
Ásgeir Heiðar er flestum hundeigendum
kunnugur. Hann hefur verið viðloðandi
veiðihunda í um 30 ár og í gegnum tíðina
sýnt fallega hunda sem eru framúrskarandi
veiðihundar. Hann er veiðimaður af lífi og
sál, hvort sem um er að ræða stangveiði eða
skotveiði. Ásgeir Heiðar leggur mikla áherslu á
að hundarnir hans séu með mikið veiðieðli. Iðni
og þolinmæði eru að hans mati lykilatriði við
þjálfun hunda. Hann er sérfróður um þjálfun
standandi veiðihunda og hefur haldið námskeið
og skrifað greinar um þjálfun slíkra hunda.
Hvenær og hvernig vaknaði
áhugi þinn á hundum og
hundaræktun og af hverju
heillast þú af þinni tegund?
Ég hef átt hunda frá unga aldri
en eignaðist fyrsta hreinræktaða
fuglahundinn minn, írskan seta, árið
1982. Ég átti þrjá slíka en þegar
þeirra tími var liðinn ákvað ég að
vanda valið og kynnti mér þær
tegundir sem voru í boði erlendis.
Eftir miklar vangaveltur varð síðan
enski pointerinn fyrir valinu. Var
ég svo heppinn að kynnast besta
pointer-manni Svía og fékk hjá
honum, árið 1995, tveggja ára tík
sem ég flutti til landsins. Fljótlega
flutti ég svo inn tvo karlhunda.
F.v. ISFtCh C.I.B. ISCh Vatnsenda Kara og nýinnflutt, Karacanis Harpa. Ljósm. O.E.
Hvernig varð ræktunarnafn þitt
til?
Ég sótti um nokkur ræktunarnöfn
sem var hafnað en að lokum fékk
ég samþykki fyrir „Vatnsenda“,
enda bý ég þar.
skapgerð og almennt heilbrigði.
Mér finnst þetta hafa tekist vonum
framar hjá mér og hef átt fjóra
þrefalda meistara, veiði-, alþjóðlegaog íslenska meistara, og ræktað tvo
af þeim.
Hverjir hafa haft mest áhrif
á þig og aðstoðað þig mest í
hundaræktuninni?
Aðallega norðmaður nokkur,
Frank-Tommy Olsen, en hann er
algjör viskubrunnur um allar ættir
pointera um víða veröld. Einnig er
ég í sambandi við helstu pointerræktendur í heiminum.
Hvaða hundur eða hundar úr
þinni ræktun finnst þér bera af
öðrum?
Það er erfitt að gera upp á milli
barna sinna.
Hvernig finnst þér ræktunin hafa
gengið?
Ég legg mesta áherslu á
veiðihæfileika og byggingu,
10 · Sámur 2. tbl. 38. árg. september 2014
F.v. ISFtCh C.I.B. ISCh Vatnsenda Nóra, Kara og Vera. Ljósm. Á.H.
Hvaða hundur eða hundar hafa,
að þínu áliti, haft mest áhrif á
stofninn hér á Íslandi?
Það er án efa ISFtCh C.I.B. ISCh
Karacanis Donna. Hún var sá
fallegasti og besti fuglahundur
sem ég hef séð. Ég flutti hana
inn sem hvolp frá Noregi og