Sámur 1. tbl 40. árg 2015 | Page 11

HRFÍ frá 2007 og er þar prófstjóri í dag. Ég hef tekið þátt í hlýðni – og sporaprófum og leitt hund í fuglahundaprófi. Ég hef starfað mikið fyrir félagið, bæði á sýningum sem ritari og hringstjóranemi og hinum ýmsu vinnuprófum,verið ritari á hundafimikeppnum, ritari í hlýðniprófi, prófstjóri í sporaprófi og starfsmaður í prófum Retrieverdeildarinnar. Ég er í sýninganefnd, gönguog skemmtinefnd og heimasíðunefnd Retrieverdeildar og í undirbúningsteymi Schnauzerdeildar fyrir deildarsýningar. Þá er ég í tveimum nefndum vegna stefnumótunarvinnu félagsins. Ég er gjaldkeri Sólheimakotsnefndar, sem er nefnd sem samanstendur af fólki sem hefur áhuga á því að endurbæta Sólheimakot og gera það vistlegra fyrir félagsmenn. Fyrir þá sem ekki þekkja til þá er Sólheimakot einskonar félagsheimili Hundaræktarfélags Íslands, þar geta allar deildir fengið að halda hina ýmsu viðburði í mjög hundvænu umhverfi. Í vetur höfum við staðið fyrir ýmsum úrbótum með hjálp góðra félaga og við vonumst til að sem flestir leggi hönd á plóg næsta sumar þegar kotið verður tekið í gegn að utan. Nefndin hefur séð um að afla styrkja fyrir öllum endurbótum við kotið, þannig að ekki er gengið á sjóði félagsins við endurbæturnar. Ég fékk sýningabakteríuna 2005 þegar ég sýndi Ask í fyrsta sinn og hef tekið þátt í nær öllum sýningum á vegum félagsins síðan. Undanfarin ár hef ég ferðast erlendis til að fylgjast með sýningum þar og notið þess að horfa á hinu ýmsu tegundir í hring. Ég hef tekið þátt í störfum Vina Vigdísar, sem er verkefni þar sem hundar eru notaðir til æfa börn í lestri og bæði Frosti (Dvergschnauzer) og Virgill (Golden Retriever) hafa starfað þar sem lestrarhundar fyrir börn. Ástæða þess að ég býð fram starfskrafta mína til stjórnar HRFÍ er að ég vil leggja mitt af mörkum til að efla störf félagsins, gera það opnara og móttækilegra fyrir hugmyndum og tillögum félagsmanna. Þá vil ég einnig leggja mitt af mörkum til að gera félagið sýnilegra og meira aðlaðandi fyrir almenning, sýna hvernig Hundaræktarfélag Íslands stuðlar að ræktun hunda sem eru líkamlega og andlega heilbrigðir. Deildir félagins eru hornsteinar þess, þar er sérþekkingin um tegundir deildanna. Það þarf að efla og virkja deildir félagsins og nota þekkinguna þaðan til að stýra ákvörðunum um heilsufarskröfur og annað sem viðkemur tegundunum. Fulltrúaráðsfundur er að mínu mati vannýttur brunnur, þar koma saman fulltrúar allra deilda félagsins og þar ættu að vera teknar ákvarðanir um störf félagsins í stað þess að vera sá upplýsingafundur sem hann er í dag. Mig langar að sjá félagið okkar virkt og lifandi þar sem félagsmenn koma saman og vinna af gleði fyrir félagið þar sem þá langar að sjá félagið vaxa og dafna en til þess þarf að auka samkennd í félaginu. Sámur 1. tbl. 40. árg. maí 2015 · 11