í framboði til stjórnar
Guðbjörg
Guðmundsdóttir
Ég heiti Guðbjörg Guðmundsdóttir og er sérfræðingur í hjúkrun
krabbameinssjúklinga og starfa á Landspítalanum.
Ég hef verið félagsmaður í HRFÍ frá 2004 þegar ég eignaðist fyrsta ættbókarfærða
hundinn minn hann Ask sem er Golden Retriever. Áður átti ég óættbókarfærðan
Golden Retriever í 12 ár. Árið 2009 eignaðist ég svo minn fyrsta Dvergschnauzer,
Frosta og ég á fjóra hunda í dag. Ég hef tekið ötulan þátt í starfsemi deildanna sem
ég tilheyri, þó meira innan Retrieverdeildar þar sem ég sat í stjórn þeirrar deildar í 6
ár, 3 sem ritari og 3 sem formaður.
Ég hef sótt ýmis námskeið tengd hundum, bæði ræktunarnámskeið og ekki síður
vinnutengd námskeið og má þar nefna hlýðninámskeið, hundafiminámskeið,
sporanámskeið, retrievernámskeið sem og sleðahundanámskeið. Þá hef ég sótt
fjöldan allan af fyrirlestrum um atferli hunda og hef starfað í skapgerðarmatshóp