hvolpa geta ofverndað hvolpa sína og sýnt grimmd. Þetta á líka stundum við um
tíkur sem í gervióléttu taka ástfóstri við tusku eða bangsa og vilja ekki leyfa neinum
að koma nálægt. Þessar tíkur verja svo gervihvolpinn eins og um alvöru hvolp sé
að ræða. Þetta ástand getur svo orðið verra með hverju skiptinu og skapað mikla
streitu hjá tíkinni.
Krabbamein og legbólga
Eftir að tík hefur verið tekin úr sambandi er ekki lengur hætta á sjúkdómum eins og
krabbameini eða sýkingum í eggjastokkum og legi. Legbólga er sýking í legi sem
getur verið banvæn ef hún er ómeðhöndluð. Legbólga er algengari í eldri tíkum.
Að meðaltali fá 25% frjórra tíka legbólgu fyrir tíu ára aldur. Einkenni sýkingarinnar
geta verið; svefnhöfgi, þunglyndi, minnkandi matarlyst, þyngdartap, þorsti, útferð
úr leggöngum, aukin þvaglát, niðurgangur, þaninn kviður, föl slímhúð í munnholi
og bólgin augu.
Ef tík er tekin úr sambandi fyrir fyrsta lóðarí (sem er umdeilanlegt) minnka líkurnar
verulega á að hún fái krabbamein í júgurvef seinna á lífsleiðinni. Líkurnar á að tíkin
fái þetta krabbamein aukast eftir því sem hún lóðar oftar. Meiri líkur eru á að hún
þrói með sér þetta krabbamein ef hún fer í aðgerðina eftir tvö lóðatímabil. Líkurnar
eru samt sem áður minni hjá þeim tíkum sem eru teknar úr sambandi fyrir tveggja
og hálfs árs aldur.
Helstu ókostir
Þótt ófrjósemisaðgerð geti vissulega haft jákvæð áhrif þá er hún ekki hættulaus. Ef
aðgerðin er framkvæmd of snemma getur það valdið vandamálum í tengslum við
liðbönd, liðamót og bein. Þetta á sérstaklega við um stórar tegundir.
Tík, sem tekin hefur verið úr sambandi, er hættara við þvagfærasýkingu, getur
þróað með sér vanvirkan skjaldkirtil eða, ef aðgerðin er gerð áður en hún er
fullvaxin, orðið hávaxnari en ella. Matarlyst eykst stundum en hægt er að fyrirbyggja
þyngdaraukningu með hollu mataræði og nægri hreyfingu. Þó svo að tík sé rólegri
en áður þýðir það ekki að hún þurfi ekki góða og mikla hreyfingu daglega. Með því
að koma í veg fyrir að líkaminn framleiði kynhormón breytast efnaskiptin.
Aðgerðin sjálf
Aðgerðin er framkvæmd þannig að annað hvort eru eggjastokkar fjarlægðir eða
allt legið frá leghálsinum. Eigandi þarf að vera meðvitaður um að öllum aðgerðum
fylgir áhætta. Helsti ókostur er hve stór aðgerðin er með meðfylgjandi áhættu sem
fylgir svæfingu. Aftur á móti er áhættan sem fylgir svæfingu og aðgerð ti