Myndir mánaðarins Ágúst 2018 tbl. 295 Bíóhluti | Page 25

Slender Man Hver ræður gátuna? Slender Man er hávaxin, grönn, andlitslaus og handleggjalöng vera sem sögð er bera ábyrgð á hvarfi fjölda barna og unglinga. En hvað gengur henni til, hvaðan kemur hún, hvernig nær hún valdi á fórnarlömbum sínum og hvað gerir hún svo við þau? Hrollvekja ágústmánaðar kemur í bíó 22. ágúst og er um leið mynd sem beðið hefur verið eftir allt frá því að sögurnar um Slender Man fóru á kreik fyrir rúmlega níu árum. Höfundurinn heitir Eric Knudsen, stundum nefndur Victor Surge, og hefur Slender Man komið víða við síðan, bæði í sögum, teikningum, tölvuleikjum og myndböndum. Margir hafa reynt að útskýra tilveru hans og hvað það er sem gerir honum kleift að birtast svo víða sem raun ber vitni. Enginn veit það. Hvort gátan verði ráðin í þessari væntanlegu mynd vitum við ekki en eitt er þó alveg ljóst: Hvar sem Slender Man birtist og sama í hvaða formi hann er þá byrja börn og unglingar að hverfa sporlaust. Punktar .................................................... Þeim sem vilja kynna sér Slender Man betur er bent á netið en þar má finna nánast allt um hann fyrir utan upplýsingar um hvernig hægt er að stöðva hann. Þess utan getur hver sem er lagt honum til bæði hæfileika, útlitsbreytingar og tilgang. Sumir vilja hafa hann í jakkafötum á meðan aðrir vilja hafa hann beran og gráan. Og svo er það andlitið og hendurnar ... hvað getur hann gert með þeim? l Slender Man Hrollvekja 91 mín Aðalhlutverk: Joey King, Javier Botet, Annalise Basso, Julia Goldani Telles, Jaz Sinclair, Kevin Chapman, Michael Reilly Burke, Taylor Richardson, Kallie Tabor og Jessica Blank Leikstjórn: Sylvain White Bíó: Smárabíó, Háskólabíó, Laugarásbíó og Borgarbíó Akureyri Frumsýnd 22. ágúst Á þeim níu árum sem Slender Man hefur verið á kreiki hefur hann birst í ýmsum myndum, eins og t.d. þessari. Ath.: Þetta er ekki stilla úr myndinni. Myndir mánaðarins 25