Myndir mánaðarins Ágúst 2018 tbl. 295 Bíóhluti | Page 22

The Meg
The Meg
Hættulegasta dýr jarðar
Vísindamönnum og áhöfn neðansjávarrannsóknarstöðvarinnar Mana One bregður í brún þegar forsögulegur risahákarl birtist skyndilega úr undirdjúpunum og laskar stöðina það mikið að þeim er bráður bani búinn komist þau ekki fljótlega upp á yfirborðið . En leiðin upp er líka leiðin beint í dauðann .
The Meg er byggð á samnefndri bókaseríu Steves Alten um kafarann og neðansjávarlíffræðinginn Jonas Taylor og ævintýri hans , en fyrsta bókin í seríunni kom út árið 1997 og eru þær sex talsins .
Í myndinni er það Jason Statham sem leikur Jonas og það tekur hann ekki langan tíma að átta sig á að þessi risahákarl sem réðst á rannsóknarstöðina er í raun hin forsögulega risaskepna megalodon sem ríkti yfir höfunum á sama tíma og risaeðlurnar ríktu á landi . Jason veit sem er að hann á litla möguleika í þessa skepnu einn og sér en þar sem líf allra í rannsóknarstöðinni liggur við , svo og allra annarra sem svamla um í sjónum í næsta nágrenni , verður hann að láta til skarar skríða ...

The Meg

Spenna / Hasar 113 mín
Aðalhlutverk : Jason Statham , Bingbing Li , Rainn Wilson , Ruby Rose , Jessica McNamee , Robert Taylor , Cliff Curtis , Shuya Sophia Cai og Ólafur Darri Ólafsson Leikstjórn : Jon Turteltaub Bíó : Sambióin Álfabakka , Egilshöll , Kringlunni , Akureyri og Keflavík , Bíóhúsið Selfossi , Ísafjarðarbíó , Eyjabíó og Bíóhöllin Akranesi
Frumsýnd 17 . ágúst
Jason Statham sem Jonas Taylor og það er kínverska leikkonan Bingbing Li sem leikur nánasta aðstoðarmann hans , Suyin .
Punktar .................................................... l Eins og í myndinni The Spy Who Dumped Me leikur Ólafur Darri Ólafsson aukahlutverk í The Meg og kallast persóna hans „ The Wall “ samkvæmt kreditlistanum á Imdb . com . Persónu hans bregður a . m . k . tvisvar fyrir í aðalstiklu myndarinnar og við skulum vona að hún eigi ekki eftir að enda líf sitt í maganum á risahákarlinum .
l Leikstjóri myndarinnar , Jon Turteltaub , sendi síðast frá sér myndina Last Vegas árið 2013 og þar á undan The Sorcerer ’ s Apprentice árið 2010 . Þess utan á hann m . a . að baki National Treasure-myndirnar tvær með Nicholas Cage í aðalhlutverki og myndirnar Instinct , Phenomenon , While You Were Sleeping og Cool Runnings .
Þótt Jonasi lítist ekkert á átök við risahákarlinn upp á eigin spýtur neyðist hann til að leggja til atlögu þar sem líf margra liggur við .
Veistu svarið ? Jason Statham heldur upp á tuttugu ára leiklistarafmæli sitt núna í ágúst því þann 28 . ágúst eru liðin nákvæmlega 20 ár síðan fyrsta myndin sem hann lék í var frumsýnd í Englandi . Hvaða mynd var það ?
22 Myndir mánaðarins
Lock , Stock and Two Smoking Barrels .