Myndir mánaðarins Ágúst 2018 tbl. 295 Bíóhluti | Page 20
Mile 22
Að duga eða drepast
Þeir sem kunna að meta góðar bardaga- og hasarmyndir eiga
von á góðu þann 15. ágúst þegar Mile 22 með Mark Wahlberg
í aðalhlutverki kemur í bíó. Sýnishornin og stiklurnar úr henni
hafa verið frábærar og gefa til kynna að um toppmynd sé að
ræða þar sem hvergi er slakað á frá upphafi til enda.
Myndin er eftir Peter Berg (Patriots Day, Deepwater Horizon, Lone
Survivor, Battleship, Hancock) og segir frá sérsveitarmanninum
James Silva (Mark Wahlberg) sem fær það erfiða og vandasama
verkefni að smygla asískum lögreglumanni úr landi sínu, en sá hafði
leitað til bandaríska sendiráðsins um vernd þar sem hann býr yfir
leynilegum upplýsingum sem tengjast eiturvopnaframleiðslu og
höfðu aflað honum dauðadóms hjá eigin stjórnvöldum. Verkefnið
virðist nánast óframkvæmanlegt því sendiráðið er umkringt þung-
vopnuðum farartækjum og mönnum sem hefur verið fyrirskipað að
fanga eða drepa flóttamanninn um leið og hann reynir að yfirgefa
sendiráðið. En James leggur samt í hann ásamt sínu fólki og veit sem
er að til að verkefnið heppnist má hann ekki gera ein einustu mistök ...
Mile 22
Spenna / Hasar
113
Mark Wahlberg leikur hinn glerharða leyniþjónustumann James
Silva sem er sérfræðingur í að framkvæma erfiðustu verkefnin.
mín
Aðalhlutverk: Mark Wahlberg, Iko Uwais, Ronda Rousey, Lauren
Cohan, John Malkovich, Terry Kinney, Sam Medina og Poorna
Jagannathan Leikstjórn: Peter Berg Bíó: Laugarásbíó, Smárabíó,
Háskólabíó, Sambíóið Keflavík og Borgarbíó Akureyri
Punktar ....................................................
Mile 22 er fjórða myndin eftir Peter Berg sem Mark Wahlberg
leikur aðalhlutverkið í en þeir eru einnig aðalframleiðendur hennar
ásamt Stephen Levinson sem m.a. framleiddi Entourage- og Board-
walk Empire-þættina. Þess má geta að þegar hefur verið ákveðið að
gera aðra mynd um ævintýri James Silva, en hlutverk hans var
skrifað sérstaklega með Mark Wahlberg í huga og eftir hans höfði.
l
Frumsýnd 15. ágúst
Sagan í Mile 22 gerist í landi í Suður-Asíu en ekki er nánar tiltekið
hvaða land er um að ræða. Hins vegar voru öll atriðin sem eiga að
gerast þar tekin upp í Bógóta í Kólumbíu og þar um kring.
l
Asíski flóttamaðurinn sem James þarf að smygla úr landi er leikinn af
einum besta bardagalistamanni heims um þessar mundir, Iko Uwais.
Veistu svarið?
John Malkovich, sem leikur stórt hlutverk í Mile 22,
á fjörutíu ára leiklistarafmæli á þessu ári en hann
birtist fyrst í bíómyndinni A Wedding eftir Robert
Altman árið 1978. En frá hvaða Evrópulandi var
faðir hans og öll hans föðurfjölskylda?
Bardagalistakonan og hnefaleikameistarinn Ronda Rousey fer hér
með sitt stærsta hlutverk í bíómynd til þessa en hún hefur áður
leikið í myndunum The Expendables 3, Fast & Furious 7 og Entourage.
Króatíu.
20
Myndir mánaðarins