Myndir mánaðarins September 2018 tbl. 296 Bíóhluti | Page 6

Myndasyrpa
Um þessar mundir eru liðin 40 ár frá því að bíómyndin Grease var frumsýnd og í gang fór Grease-æði um allan heim . Af því tilefni var blásið til veislu í Samuel Goldwyn-bíóinu í Beverly Hills á dögunum þar sem leikarar og aðstandendur myndarinnar hittust á ný og bar þar að sjálfsögðu hæst endurfundi Oliviu Newton-John og Johns Travolta sem fóru með aðalhlutverkin í myndinni og urðu heimsfræg fyrir vikið . Myndin hér fyrir ofan t . v . var tekin við þetta tilefni , en Olivia verður einnig sjötug 26 . september og John er orðinn 64 ára .
Þessi stilla er sú fyrsta sem birst hefur úr nýjustu mynd leikstjórans og handritshöfundarins Peters Hedges ( innfellda myndin ), Ben is Back , sem frumsýna á í desember . Í henni leika þau Julia Roberts og Lucas Hedges ( sem er sonur Peters ) mæðgin sem hittast á ný eftir langan aðskilnað og þurfa að gera upp viðkvæm mál . Það hlakka margir til að sjá þessa fyrstu mynd Peters í sex ár , en hann á sem leikstjóri að baki gæðamyndirnar The Odd Life of Timothy Green , Pieces of April og Dan in Real Life . Færri vita kannski að Peter er einnig höfundur skáldsögunnar What ' s Eating Gilbert Grape sem samnefnd mynd var gerð eftir árið 1993 og aflaði honum heimsfrægðar á sínum tíma .
Þetta er kínverska leikkonan Yifei Liu sem hér er komin í gervi kínversku alþýðuhetjunnar Mulan í samnefndri og væntanlegri mynd frá Walt Disney , sem er aftur leikin endurgerð samnefndrar teiknimyndar fyrirtækisins frá árinu 1998 . Leikstjóri er Niki Caro sem gerði m . a . myndirnar The Zookeeper ’ s Wife , McFarland og North Country . Lítill vafi leikur á því að Mulan muni gera það gott eins og hinar myndirnar sem Disney hefur verið að endurgera á undanförnum árum eftir eldri teiknimyndum sínum , en talsvert er samt í frumsýningu því Mulan er ekki á dagskrá bíóanna fyrr en í mars 2020 .
Hér sjáum við eina aðalpersónuna í væntanlegri mynd leikstýrunnar Karynar Kusama ( Jennifer ’ s Body , Girlfight , Æon Flux ) og sýnir myndin vel hvað frábær förðun getur gert . Vafalaust átta margir sig strax eða fljótlega á því hvaða heimsfræga leikkona er á bak við gervið , en þeim sem sjá það ekki eða eru óvissir og langar að vita svarið er bent á að fletta myndinni upp á netinu og gá . Hún heitir Destroyer .
Í byrjun nóvember verður Disney-myndin The Nutcracker and the Four Realms frumsýnd en þar er á ferðinni viðamikil ævintýramynd sem að hluta til er byggð á sögunni um Hnetubrjótinn . Við kynnum þessa mynd betur í næstu tveimur blöðum en bendum Disney-myndaaðdáendum á að skoða glænýjar stiklurnar úr henni . Á myndinni eru þær Mackenzie Foy og Keira Knightley sem fara með stærstu hlutverkin ásamt þeim Helen Mirren og Morgan Freeman .
Fyrsta bíómyndin sem gerð er um þá leikfélaga Oliver Hardy og Stan Laurel , eða Steina og Olla eins og þeir voru kallaðir á íslensku ( eða Gøg og Gokke á dönsku ), verður frumsýnd í janúar og er í leikstjórn Jons S . Baird sem síðast sendi frá sér hina sérstöku mynd Filth . Með hlutverk kappanna fara þeir John C . Reilly og Steve Coogan og gerist myndin undir lok ferils þeirra þegar þeir fóru í sína síðustu sýningarferð um Bretlandseyjar eftir að hafa leikið í meira en 100 myndum á árunum 1921 til 1951 sem margar hverjar urðu mjög vinsælar .
6 Myndir mánaðarins