Myndir mánaðarins September 2018 tbl. 296 Bíóhluti | Page 26

Night School Gamanmynd
Night School
ekki
Það er leikur að læra
Teddy Walker er sölumaður af guðs náð en á við þann vanda að stríða að hann hætti í framhaldsskóla á sínum tíma og tók aldrei lokaprófið . Af þeim sökum getur hann ekki fengið starf þar sem launin eru nógu mikil til að hann geti stofnað fjölskyldu með sinni heittelskuðu Lisu . Og hvað gera menn þá ?
Jú ... menn fara auðvitað í kvöldskóla og freista þess að ná prófinu þótt seint sé . Vandamálið í tilfelli Teddys er hins vegar að hann þjáist af öllu því sem kemur í veg fyrir að hann geti lært , þ . á m . bæði les- og skrifblindu auk þess sem hann er hræddur við tölur og getur ekki leyst einföldustu stærðfræðidæmi . Honum til happs er að kennarinn hans í kvöldskólanum , Carrie , er ekkert blávatn og sættir sig ekki við annað en að nemendur hennar nái tilskildum árangri ...

Night School Gamanmynd

111 mín
Aðalhlutverk : Kevin Hart , Tiffany Haddish , Keith David , Ben Schwartz , Anne Winters , Rob Riggle , Taran Killam og Megalyn Echikunwoke Leikstjórn : Malcolm D . Lee Bíó : Laugarásbíó , Sambíóin Egilshöll , Álfabakka og Keflavík og Borgarbíó Akureyri
Frumsýnd 28 . september
Hinn skemmtilegi Kevin Hart leikur Teddy Walker sem þarf nauðsynlega að ná framhaldsskólaprófi svo hann geti fengið vinnu hjá fjármálafyrirtæki . Vandamálið er að hann virðist ekki geta lært neitt .
Punktar .................................................... l Kevin Hart er sjálfur aðalframleiðandi myndarinnar og á einnig stóran þátt í handritsskrifunum . Um leið er þetta fyrsta bíómyndin sem hann framleiðir og einnig fyrsta bíóhandritið sem hann skrifar .
l Leikstjóri myndarinnar , Malcolm D . Lee , á margar vinsælar myndir að baki og má þar nefna The Best Man , Undercover Brother , Soul Man , The Best Man Holiday og Girls Trip sem var frumsýnd í fyrra .
l Þess má geta að þau Kevin Hart og Tiffany Haddish sem leika aðalhlutverkin hafa verið miklir vinir allt frá því að þau hittust sem uppistandarar árið 2005 hjá Comedy Central-sjónvarpsstöðinni .
Tiffany Haddish leikur kennarann Carrie sem er síður en svo tilbúin til að láta nemendur sína komast upp með eitthvert múður .
Veistu svarið ? Kevin Hart skóp sér fyrst nafn í skemmtanabransanum þegar hann sló í gegn sem uppistandsgrínari í grínklúbbum New York upp úr aldamótunum . Þá kom hann oft fram undir listamannsheiti sem hann notar þó sjaldan núorðið . Veistu hvað það er ?
Það slær margoft í brýnu á milli kennarans Carrie og Teddys enda sættir hún sig ekki við annað en að hann nái tilskildum prófum .
26 Myndir mánaðarins
Chocolate Droppa .