Myndir mánaðarins September 2018 tbl. 296 Bíóhluti | Page 25

Smáfótur Mígó fer í leiðangur Fullkominn bíómánuður inniheldur a.m.k. eina góða teikni- mynd sem höfðar til fólks á öllum aldri og þann 28. september kemur einmitt ein slík í bíó. Þetta er myndin Smáfótur sem er byggð á teiknimyndasögunni Yeti Tracks eftir Sergio Pablos, þeim sama og skapaði sögurnar um Gru og gulu skósveinana. Myndin fjallar um samfélag snjómanna hátt uppi í snæviþöktum fjöllum sem vita ekki að til séu siðuð samfélög fyrir utan þeirra eigið. Sögur hafa vissulega sprottið upp öðru hverju af smáskrímsl- um sem hafa komið röltandi neðan frá og upp á tindinn en öllum slíkum sögum hefur verið vísað frá sem hjátrú í besta falli og bulli og vitleysu í því versta. Það kemur því heldur betur fát á einn ungan snjómann, Mígo, þegar hann rekst einmitt á svona smá- skrímsli í eigin persónu sem því miður sleppur þó úr greipum hans. Mígo reynir að segja hinum snjómönnunum frá þessu en uppsker bara hæðni og hlátur eins og hann sé sjálfur genginn af göflunum. Við það getur Mígo ekki sætt sig, því hann veit hvað hann sá, og ákveður að halda einn síns liðs niður fjallið og finna hvar smáskrímsl- in halda sig svo hann geti sannað sitt mál í eitt skipti fyrir öll ... Punktar .................................................... Myndin verður bæði sýnd með íslensku og ensku tali þar sem m.a. Channing Tatum, James Corden, Zendaya, Common, LeBron James, Gina Rodrigues og Danny DeVito ljá persónunum raddir sínar. l Smáfótur Teiknimynd 109 mín Íslensk talsetning: Eyþór Ingi Gunnlaugsson, Þórdís Björk Þorfinns- dóttir, Sigurður Þór Óskarsson, Davíð Guðbrandsson, Þuríður Blær Jóhannsdóttir, Orri Huginn Ágústsson, Oddur Júlíusson, Þórhallur Sigurðsson o.fl. Leikstjórn: Rósa Guðný Þórsdóttir Bíó: Sambíóin Álfabakka, Egilshöll, Kringlunni, Akureyri og Keflavík, Háskólabíó, Ísafjarðarbíó, Bíóhúsið Selfossi, Króksbíó, Skjaldborgarbíó, Bíóhöllin Akranesi og Eyjabíó Frumsýnd 28. september Myndir mánaðarins 25