Myndir mánaðarins Október 2018 tbl. 297 Bíóhluti | Page 23

Undir halastjörnu Saga um glæp Kvikmyndin Undir halastjörnu sækir innblásturinn í líkfundar- málið svokallaða sem vakti gríðarlega athygli árið 2004, en það hófst þann 4. febrúar sama ár þegar kafari sem var að kanna skemmdir á bryggjumannvirkjum á Neskaupstað fann sundurskorið lík af karlmanni sem hafði verið kastað í sjóinn. Um leið hófst ein umfangsmesta lögreglurannsókn ársins sem leiddi um síðir í ljós að sannleikur málsins var lyginni líkastur. Undir halastjörnu er fyrsta bíómyndin sem Ari Alexander Ergis Magnússon gerir en hann á m.a. að baki heimildarmyndirnar Synd- ir feðranna og Gargandi snilld. Stiklan úr myndinni gefur góða von um að hér sé um hörkumynd að ræða sem vonandi allt íslenskt kvikmyndaáhugafólk mun sjá, en hún verður frumsýnd 12. okt óber. Undir halastjörnu, sem ber alþjóðlega titilinn Mihkel, er framleidd af Friðriki Þór Friðrikssyni, Kristni Þórðarsyni, Leifi B. Dagfinnssyni og leikstjóranum Ara Alexander sem jafnframt skrifaði handritið. Undir halastjörnu Spenna / Sakamál 101 mín Aðalhlutverk: Tómas Lemarquis, Atli Rafn Sigurðarson, Kaspar Velberg, Paaru Oja, Ingvar E. Sigurðsson og Zlatko Buric Leikstjórn: Ari Alexander Ergis Magnússon Bíó: Smárabíó, Háskólabíó, Laugarásbíó og Borgarbíó Akureyri Tómas Lemarquis og Atli Rafn Sigurðarson í hlutverkum sínum sem Bóbó og Jóhann í spennu- og sakamálamyndinni Undir halastjörnu. Frumsýnd 12. október Á efri myndinni er Kaspar Velberg í hlutverki sínu sem Igor en á meðal annarra leikara er Ingvar E. Sigurðsson sem leikur Skúla. Myndir mánaðarins 23