Myndir mánaðarins Október 2018 tbl. 297 Bíóhluti | Page 14

Væntanlegt í nóvember
Hin sígilda saga dr . Seuss um ótuktina Trölla sem ákvað að stela jólunum frá íbúum Hver-bæjar kemur í bíó í nóvember í ferskum búningi fyrirtækisins Illumination sem gerði m . a . Aulinn égmyndirnar , myndina um Skósveinana , Syngdu og Leynilíf gæludýra .
Trölli býr í fjalli fyrir ofan Hver-bæ sem eitt sinn var heimabær hans og lætur það fara alveg sérstaklega í taugarnar á sér þegar fyrrverandi nágrannar hans byrja að skreyta fyrir jólin , kaupa gjafir og gleðjast . Hann ákveður því að taka til sinna ráða , læðast inn í bæinn að næturlagi og hreinlega stela öllum gjöfunum og skreytingunum þannig að íbúarnir nái ekki að halda upp á jólin og verði jafnfúllyndir og hann er sjálfur . Það sem hann reiknar hins vegar ekki með er að þótt hann geti í sjálfu sér stolið því efnislega sem tengt er jólunum getur hvorki hann né nokkur annar stolið jólagleðinni sjálfri . Og hvað gerir Trölli þá ?
Í nóvember er líka komið að öðrum kafla sögunnar um Newt Scamander og ævintýri hans í veröld töfra og töframanna sem eins og gengur eru misgóðir og mistraustir líkt og reynslan hefur sýnt . Fyrir utan Newt , sem Eddie Redmayne leikur á ný , hittum við að sjálfsögðu vini hans úr fyrstu myndinni og marga nýja karaktera , meira að segja tvo sem leiknir eru af Ingvari E . Sigurðssyni og Ólafi Darra Ólafssyni . En aðalandstæðingur Newts að þessu sinni verður hinn valdagráðugi Gellert Grindelwald sem Johnny Depp leikur . Hann er sannarlega ekki allur þar sem hann er séður og á eftir að setja í gang alveg stórhættulega atburðarás sem Newt á í fullu fangi með að stöðva , jafnvel þótt hann njóti aðstoðar öflugra samherja , þ . á m . Albusar Dumbledore sem Jude Law leikur .
Fyrsta Fantastic Beast-myndin halaði inn um 814 milljónir dollara í kvikmyndahúsum og verður gaman að sjá hvort þessi geri betur .
Þegar Trölli stal jólunum er sígild og mjög fyndin saga sem á alltaf erindi við alla , bæði börn og fullorðna .
Eddie Redmayne leikur sem fyrr hinn göldrótta Newt Scamander sem reynir að nota hæfileika sína til að gera líf annarra betra .
14 Myndir mánaðarins