Myndir mánaðarins Október 2018 tbl. 297 Bíóhluti | Page 10
Bíófréttir – Væntanlegt
Því er ekki að neita að þær eru vígalegar á að líta leikkonurnar Saoirse Ronan og Margot Robbie hér að ofan þar sem þær eru í hlutverkum sínum
sem Mary Stúart Skotadrottning annars vegar og hins vegar sem Elísabet 1 Englandsdrottning í væntanlegri mynd leikstjórans Josies Rourke,
Mary Queen of Scots, sem frumsýna á í janúar. Myndin er byggð á bók Johns Guy og segir frá því þegar Mary Stúart, sem var réttborin drottning
Skota, sneri til Skotlands á ný eftir að hafa alist upp í Frakklandi frá unga aldri. Margir, þar á meðal hún sjálf, töldu hana einnig eiga tilkall til ensku
krúnunnar, en því var Elísabet að sjálfsögðu ekki sammála. Eftir að Mary hafði lent í vandræðum heima fyrir sem tengdust hjónabandi hennar og
James Hepburn leitaði hún á náðir Elísabetar árið 1567. Þær stöllur voru í raun ekki óvinir en þar sem Mary hafði gert tilkall til ensku krúnunnar og
naut stuðnings uppreisnarhóps sem studdi þá kröfu þá þorði Elísabet ekki að styðja hana og í gang fór mikil barátta sem við förum ekki nánar út í
hér. Mary Queen of Scots er ein af þeim myndum sem er spáð góðu gengi á verðlaunahátíðum næsta árs og við bíðum spennt að sjá hvað verður.
Hér sjáum við bandaríska leikstjórann, handritshöfundinn og fram-
leiðandann Cary Joji Fukunaga sem m.a. gerði 2011-myndina Jane
Eyre og síðan hina áhrifaríku Beasts of No Nation árið 2015 auk þess að
vera aðalhöfundur sjónvarpsþáttanna Maniac sem notið hafa mikilla
vinsælda að undanförnu. Nýlega var tilkynnt að Cary hefði verið ráðinn
leikstjóri næstu James Bond-myndar, þeirrar 25. í röðinni, í kjölfar þess
að Danny Boyle sagði sig frá verkefninu vegna „listræns ágreinings“
við framleiðendur hennar. Myndin á að vera tilbúin í febrúar 2020 og
eru miklar vonir bundnar við að Cary eigi eftir að viðhalda vinsældum
Bonds og gott betur, enda frábær leikstjóri eins og fyrri myndir hans
hafa sýnt svo glögglega. Við sendum honum a.m.k. góða strauma!
10
Myndir mánaðarins
Það eru heil 40 ár á milli þessara
tveggja mynda sem teknar voru
af þeim John Carpenter leikstjóra
og leikkonunni Jamie Lee Curtis.
Sú fyrri var tekin árið 1978 þegar Jamie lék aðalhlutverkið í mynd
Carpenters, Halloween, og sú seinni var tekin í sumar eftir að tökum á
nýrri Halloween-mynd lauk en Carpenter var einn af framleiðendum
hennar og listrænn ráðgjafi. Nýja myndin gerist líka 40 árum eftir
atburðina í þeirri fyrri og Jamie leikur sömu persónuna og þar, Laurie
Strode, sem nú fær loksins tækifæri til að gera upp sakirnar við
morðingjann Michael Myers. Sjá nánar um myndina á blaðsíðu 27.