Myndir mánaðarins Október 2017 tbl. 285 Bíó | Page 4
Myndir mánaðarins
Allir í bíó í október!
Það má segja að kvikmyndaveislan í október sé römmuð inn af
þeim tveimur stórmyndum sem prýða forsíður blaðsins að þessu
sinni, annars vegar af Blade Runner 2049 sem verður frumsýnd í
byrjun mánaðarins, 6. október, og hins vegar nýju myndinni um
þrumuguðinn Þór, Ragnarök, sem verður frumsýnd í lok hans, 27.
október. Með þeim og inn á milli eru svo margar aðrar áhuga-
verðar myndir á dagskrá sem eins og venjulega koma úr öllum
áttum, allt frá því að vera fjölskyldumyndir og upp í trylla sem
eru bannaðir innan 16 ára. Þetta þýðir auðvitað að allir munu
finna sér bíóskemmtun við hæfi en hér er heildardagskráin:
Októberdagskrá bíóhúsanna:
6. okt.
6. okt.
9. okt.
13. okt.
13. okt.
13. okt.
20. okt.
20. okt.
20. okt.
20. okt.
27. okt.
27. okt.
27. okt.
Blade Runner 2049
My Little Pony: Bíómyndin
Vetrarbræður
The Snowman
Sumarbörn
Borg vs. McEnroe
Happy Death Day
Hneturánið 2
Unlocked
Geostorm
The Foreigner
Rökkur
Thor: Ragnarök
Bls. 16
Bls. 18
Bls. 19
Bls. 20
Bls. 22
Bls. 23
Bls. 24
Bls. 26
Bls. 27
Bls. 28
Bls. 29
Bls. 30
Bls. 32
Sjáumst í bíó!
Viltu vinna bíómiða fyrir tvo í
eitthvert kvikmyndahúsanna?
Finndu þá þyrluna og taktu þátt í leiknum!
Leikurinn er ekki flókinn. Þú þarft að finna litla þyrlu
sem flaug inn á eina síðuna hér bíómegin í blaðinu
og lítur út eins og þessi:
Ef þú finnur þyrluna og vilt taka þátt í leiknum skaltu fara inn
á facebook.com/myndirmanadarins og senda okkur rétta svarið
með skilaboðum, þ.e. númerið á blaðsíðunni þar sem þyrlan er.
Mundu að hafa fullt heimilisfang og póstnúmer með svarinu.
Frestur til þátttöku er til og með 20. október. Valið verður af
handahófi úr réttum lausnum eftir það og verða nöfn vinnings-
hafanna síðan birt á Facebook-síðunni okkar og í næsta tölublaði.
Vinningshafar í síðasta leik, finndu kisuna:
Guðmundur Freyr Kristjánsson, Efstasundi 73, 104 Reykjavík
Erla Sigurðardóttir, Bústaðavegi 51,108 Reykjavík
Sveinn Logi Pálsson, Klukkuvöllum 42, 221 Hafnarfirði
Íris Margrétardóttir, Austurvegi 6, 240 Grindavík
Björgvin Theodór Hilmarsson, Baldursgarði 11, 230 Keflavík
Takk fyrir þátttökuna!
MYNDIR MÁNAÐARINS
285. tbl. október 2017
Útgefandi: Myndir mán. ehf., Trönuhrauni 1, 220 Hafnarfirði, sími 534-0417
Heimasíða: www.myndirmanadarins.is
Ábyrgðarmaður: Stefán Unnarsson / [email protected]
Texti / Umbrot: Bergur Ísleifsson
Próförk: Veturliði Óskarsson
Prentun / Bókband: Ísafoldarprentsmiðja
Upplag: 22.000 eintök
4
Myndir mánaðarins
FRUMSÝND
6. OKTÓBER