Myndir mánaðarins Október 2017 tbl. 285 Bíó | Page 28
Geostorm
Ofsaveður í aðsigi
Geostorm gerist í náinni framtíð þegar menn hafa smíðað risa-
stórt net gervihnatta og geta með þeim stjórnað veðrinu.
Þegar kerfið bilar kemur það í hlut nokkurra geimfara undir
forystu Jakes Lawson að finna orsökina og gera við kerfið. En
Jake kemst fljótlega að því að „bilunin“ er engin bilun heldur
upphafið að mannskæðustu hryðjuverkaárás allra tíma.
Geostorm er eftir Dean Devlin sem hér gerir sína fyrstu mynd sem
leikstjóri en hann er mun þekktari sem framleiðandi og handrits-
höfundur og gerði sem slíkur t.d. Independence Day-, Stargate- og
Universal Soldier-myndirnar. Handritið að Geostorm er líka eftir
Dean og hann er að sjálfsögðu einnig aðalframleiðandi hennar.
Eftir að breytingar í veðurfari ollu sífellt alvarlegri náttúruhamförum
í formi kröftugra storma og flóða ákváðu þjóðir heims að byggja
upp net gervihnatta sem gætu eytt hættulegum veðurmyndunum
áður en þær verða mannskæðar. Til að byrja með verkar kerfið eins
og draumur en þegar endurteknar bilanir fara að gera vart við sig
með alvarlegum afleiðingum er loftslagsfræðingurinn Jake Lawson
fenginn til að kanna málið. Þegar rannsókn hans leiðir í ljós að
bilanirnar eru í raun af mannavöldum hefst æsilegt kapphlaup við
tímann því þá sem bera ábyrgð á hamförunum verður að finna og
stöðva áður en það er orðið of seint fyrir mannkynið ...
Geostorm
Spenna / Hasar / Vísindaskáldsaga
109
mín
Aðalhlutverk: Gerard Butler, Talitha Eliana Bateman, Abbie Cornish,
Ed Harris, Andy Garcia, Jim Sturgess, Eugenio Derbez og Mare
Winningham Leikstjórn: Dean Devlin Bíó: Sambíóin Álfabakka,
Egilshöll, Kringlunni, Akureyri og Keflavík, Bíóhöllin Akranesi,
Ísafjarðarbíó, Skjaldborgarbíó, Króksbíó, Selfossbíó og Eyjabíó
Frumsýnd 20. október
Gerard Butler leikur loftslagsfræðinginn Jake Lawson í Geostorm.
Punktar ....................................................
Við gerð myndarinnar var leitað til Geimferðastofnunar Banda-
ríkjanna, NASA, og fékkst leyfi til að mynda nokkur atriðanna í
húsakynnum NASA í New Orleans.
l
Segja má að með sögunni í myndinni hafi Dean Devlin leitað í
smiðju langtímasamstarfsmanns síns, Rolands Emmerich, en fyrsta
myndin sem hann gerði árið 1984, Das Arche Noah Prinzip, fjallaði
einmitt um geimstöðvar sem voru misnotaðar til að hefja stríð.
l
Hryðjuverkin valda ekki einungis gríðarlegum flóðbylgjum og ...
Veistu svarið?
Gerard Butler fagnar þrjátíu ára kvikmyndaferli um
þessar mundir en hann lék í sinni fyrstu mynd, Mrs.
Brown, árið 1997 í leikstjórn Johns Madden. Síðan þá
hefur hann leikið í fjölmörgum myndum, þ. á m. aðal-
hlutverkið í einni bestu mynd Guys Ritchie. Hvaða?
... stormum heldur einnig fimbulkulda og stórhættulegu hagléli.
RocknRolla.
28
Myndir mánaðarins