Myndir mánaðarins Október 2017 tbl. 285 Bíó | Page 22
Sumarbörn
Þegar flótti er eina leiðin heim
Systkinin Eydís og Kári eru bara sex og fimm ára gömul þegar
foreldrar þeirra skilja og á meðan móðir þeirra reynir að fóta
sig á ný er börnunum komið fyrir á barnaheimili úti í sveit.
Dvöl þeirra þar á þó eftir að verða mun lengri en ráðgert var.
Kvikmyndinni Sumarbörnum, sem er fyrsta bíómynd leikstjórans
og handritshöfundarins Guðrúnar Ragnarsdóttur, er lýst sem fjöl-
skylduvænni fantasíu og er sagan í henni að hluta til byggð á
reynslu og upplifun Guðrúnar sjálfrar.
Þegar dagarnir líða einn af öðrum og það lengist stöðugt í biðinni
eftir að verða sótt af móður sinni verða vonbrigði systkinanna og
söknuður til þess að Eydís fer að hugsa um aðrar leiðir til að koma
sér burt af heimilinu, enda er forstöðukona þess hvorki góð við
hana né bróður hennar eða önnur börn. Þegar haustar og hin börn-
in fara að týnast heim á leið eitt af öðru ákveður Eydís að láta til
skarar skríða og stinga af ásamt Kára. Leiðin heim á hins vegar einnig
eftir að reynast löng og ströng, en Eydís deyr ekki ráðalaus ...
Sumarbörn
Fjölskyldumynd / Fantasía
85
mín
Aðalhlutverk: Kristjana Thors, Stefán Örn Eggertsson, Brynhildur
Guðjónsdóttir, Magnea B. Valdimarsdóttir og Margrét Birta
Björgúlfsdóttir Leikstjórn: Guðrún Ragnarsdóttir Bíó: Smárabíó,
Háskólabíó, Bíó Paradís og Borgarbíó Akureyri
Frumsýnd 13. október
Brynhildur Guðjónsdóttir leikur stærsta fullorðinshlutverkið,
forstöðukonu barnaheimilisins sem er hörð í horn að taka.
22
Myndir mánaðarins
Kristjana Thors leikur aðalhlutverkið í Sumarbörnum, hina sex
ára gömlu Eydísi, og þykir standa sig ákaflega vel rétt eins og
hinir krakkarnir sem koma fram í misstórum hlutverkum.