Myndir mánaðarins Október 2017 tbl. 285 Bíó | Page 19
Vetrarbræður
Hlýjan í kuldanum
Vetrarbræður, fyrsta bíómynd leikstjórans Hlyns Pálmasonar
sem samdi einnig söguna og handritið, lofar ákaflega góðu ef
miðað er við þær frábæru viðtökur og umsagnir sem hún
hefur þegar fengið. Það er full ástæða til að hvetja alla kvik-
myndaunnendur til að láta þessa mynd ekki fram hjá sér fara.
Vetrarbræður gerist í einangraðri verkamannabyggð einhvers stað-
ar í Danmörku þar sem við kynnumst bræðrunum Johani og
Emil. Þegar heimabrugg þess síðarnefnda leiðir til þess að einn
af verkamönnunum veikist hastarlega leiðir það til harkalegra
deilna og útskúfunar sem Emil á erfitt með að höndla, enda ekki á
bætandi í þessu einangraða samfélagi sem bauð ekki upp á mikinn
kærleik eða umhyggju fyrir. Um leið reynir á samstöðu bræðranna,
en þegar Johan virðist á góðri leið með að vinna ástir draumastúlku
Emils hefst atburðarás sem enginn hefði getað séð fyrir ...
Þess má geta að undirtitill myndarinnar á ensku er „A Lack of Love
Story“ enda segir Hlynur sjálfur að sagan sé um „skort á ást og
löngun eftir því að vera elskaður og þráður“. Vetrarbræður er sögð
allt í senn, dökk, djörf, fyndin og köld ... en hlý í miðjunni.
Vetrarbræður
Drama
100
mín
Aðalhlutverk: Elliott Crosset Hove, Simon Sears, Victoria Carmen
Sonne, Michael Brostrup, Anders Hove, Lars Mikkelsen og Stefan
Mølholt Leikstjórn: Hlynur Pálmason Bíó: Háskólabíó og Bíó Paradís
Frumsýnd 9. október
Simon Sears og Elliott Crosset Hove leika bræðurna Johan og Emil.
Punktar ....................................................
Myndin verður opnunarmynd RIFF – Reykjavík International Film
Festival í ár en fer svo í almennar sýningar 9. október.
l
Vetrarbræður hefur fengið frábærar viðtökur á þeim kvikmynda-
hátíðum sem hún hefur þegar verið sýnd á, t.d. Locarno-hátíðinni
þar sem hún hlaut fern verðlaun og var tilnefnd sem besta myndin.
Myndin er samt bara rétt að hefja för sína um kvikmyndahátíðir
heimsins og má reikna með að sú för verði ánægjuleg í alla staði.
l
Þeir erlendu gagnrýnendur sem hafa séð myndina hafa lokið á
hana miklu lofsorði og sagt hana afar áhrifamikla og eftirminnilega,
svo og almennir áhorfendur eins og sjá má t.d. á Imdb.com.
l
Vetrarbræður gerist á ónefndum stað utan alfaraleiðar í Danmörku
þar sem lífið snýst um lítið annað en daglega rútínu verkamanna.
Veistu svarið?
Hlynur Pálmason lagði stund á kvikmyndagerð í Dan-
mörku, en útskriftarmynd hans, sem er með Ingvari
Sigurðssyni í aðalhlutverki, vakti mikla athygli og var
m.a. tilnefnd til dönsku Robert-kvikmyndaverðlaun-
anna sem besta stuttmynd ársins. Hvað heitir hún?
Málarinn (En Maler).
Myndir mánaðarins
19