Myndir mánaðarins Nóvember 2018 tbl. 298 Bíómyndir | Page 31
Ralf rústar Internetinu
Ferðalag sem á engan sinn líka!
Sex ár eru liðin frá því að við hittum síðast hinn viðkunnanlega
Ralf sem nú lendir í nýjum ævintýrum ásamt vinkonu sinni,
Vannellópu sykursætu, þegar bilun í leiktækjasalnum þar sem
þau vinna verður til þess að þau fara í ferðalag á Internetinu!
Ralf rústar Internetinu, nýjasta myndin frá Disney, þykir stórkostleg
skemmtun frá upphafi til enda. Fyrir utan ævintýrin sem þau Ralf
og Vannellópa sykursæta lenda í á ferðalaginu hitta þau fjölmarga
merka karaktera og líka persónur úr öðrum þekktum ævintýrum
eins og Mjallhvíti, Fríðu, Öskubusku, Þyrnirós, Elsu, Jasmín, Múlan,
Pocahontas, Aríel, Groot, C3PO, Bósa ljósár, Eyrnaslapa og fleiri.
Myndin er talsett á íslensku af landsliði íslenskra leikara og verður
einnig sýnd á ensku þar sem þau John C. Reilly, Sarah Silverman, Gal
Gadot, Kristen Bell, Mandy Moore, Alan Tudyk, Idina Menzel, Alfred
Molina og margir fleiri ljá persónunum raddir sínar. En hvort sem
fólk kýs að sjá íslensku eða ensku útgáfuna er óhætt að lofa því að
Ralf rústar Internetinu er afar fyndin og fjörug skemmtun fyrir alla.
Ralf rústar Internetinu
Teiknimynd
Íslensk talsetning: Hjálmar Hjálmarsson, Vigdís Pálsdóttir, Íris
Tanja Flygenring, Salka Sól Eyfeld, Ævar Þór Benediktsson, Bergur
Ingólfsson, Selma Björnsdóttir, Álfrún Örnólfsdóttir, Ágústa Eva
Erlendsdóttir, Björgvin Franz Gíslason, Þórhallur Sigurðsson og fleiri
Leikstjórn: Rósa Guðný Þórsdóttir Bíó: Sambíóin Álfabakka, Egilshöll,
Kringlunni, Akureyri og Keflavík, Laugarásbíó, Smárabíó, Ísafjarðarbíó,
Bíóhúsið Selfossi, Eyjabíó, Króksbíó og Skjaldborgarbíó
Frumsýnd 30. nóvember
Myndir mánaðarins
31