Myndir mánaðarins Nóvember 2018 tbl. 298 Bíómyndir | Page 30
The Old Man & the Gun
Næstum því sönn saga
The Old Man & the Gun er lauslega byggð á sögu bankaræn-
ingjans Forrests Tucker sem var fyrst dæmdur í fangelsi 15 ára
gamall en náði að flýja átján sinnum úr fangelsi (í rúmlega 30
flóttatilraunum) og tók ætíð strax upp sína fyrri uppáhalds-
iðju, þ.e. bankarán – þangað til honum var stungið inn aftur.
Sagan um Forrest Tucker er hér sögð á gamansaman hátt og gerist
að mestu eftir að hann flýr á ótrúlegan hátt úr San Quentin-fang-
elsinu. Forrest, sem virtist ekki síður njóta þess að láta lögregluna
eltast við sig en að ræna banka, tekur þegar upp fyrri iðju og er
fljótlega orðinn einn eftirlýstasti maðurinn í landinu. En Forrest
hefur bara gaman af því, staðráðinn í að ræna enn fleiri banka ...
Sissy Spacek og Robert Redford í hlutverkum sínum sem þau Jewel
og margdæmdi bankaræninginn og flóttamaðurinn Forrest Tucker.
Punktar ....................................................
The Old Man & the Gun
Gamandrama / Sannsögulegt
93
mín
Aðalhlutverk: Robert Redford, Casey Affleck, Sissy Spacek, Danny
Glover, Tom Waits, Tika Sumpter og Ari Elizabeth Johnson Leikstjórn:
David Lowery Bíó: Háskólabíó
Frumsýnd 30. nóvember
HHHHH - Observer HHHH 1/2 - L.A. Times HHHH 1/2 - Variety
HHHH 1/2 - Rolling Stone HHHH 1/2 - Chicago Sun-Times
HHHH 1/2 - R.Ebert.com HHHH 1/2 - Vanity Fair HHHH - IGN
HHHH - Entert. W. HHHH - IndieWire HHHH - The Guardian
HHHH - Screen International HHHH - The New Yorker
The Old Man & the Gun hefur verið sýnd á nokkrum kvikmynda-
hátíðum beggja vegna Atlantshafsins og hlotið afar góða dóma
gagnrýnenda og áhorfenda. Hún er þegar þetta er skrifað með 8,0
í meðaleinkunn hjá Metacritic, 90% „fresh“ á Rotten Tomatoes og
7,4 í meðaleinkunn tæplega 1.900 notenda Imdb.com.
l
Robert Redford, sem varð 82 ára í ágúst og á 58 ára feril að baki
sem leikari, hefur látið hafa eftir sér að The Old Man & the Gun sé
síðasta myndin sem hann leikur í og að hann hefði viljað ljúka ferl-
inum með léttri gamanmynd sem flestir gætu haft gaman af.
l
Tom Waits leikur Waller, vin og vitorðsmann Forrests Tucker.
Veistu svarið?
Robert Redford, sem hér með er sestur í helgan
stein, er margverðlaunaður og hlaut m.a. tvenn
Óskarsverðlaun á ferlinum, annars vegar fyrir
framlag sitt til kvikmyndanna árið 2002 og hins
vegar árið 1981 fyrir leikstjórn á ... hvaða mynd?
Casey Affleck leikur alríkislögreglumanninn John Hunt sem er
á eftir Forrest Tucker en þykir jafnframt mikið til hans koma.
Ordinary People.
30
Myndir mánaðarins