Myndir mánaðarins Nóvember 2017 tbl. 286 Bíó | Page 18

Bíófréttir – Myndasyrpa
Ryan Gosling sveiflar hér snöru í hlutverki Neils Armstrong , fyrsta mannsins sem steig fæti á tunglið , við tökur á First Man , nýjustu mynd Damiens Chazelle ( La La Land ).
Þau George Clooney , eiginkona hans Amal og móðir hennar , Baria Alamuddin , voru mætt til Los Angeles í sínu fínasta pússi þann 22 . október til að vera viðstödd forsýningu á nýjustu mynd Clooneys , Suburbicon , en hún er einmitt kynnt nánar hér aftar í blaðinu .
Martin Scorsese segir þeim Robert De Niro og Al Pacino til við tökur á The Irishman , en hún er einnig fyrsta myndin sem Joe Pesci leikur í eftir langt hlé frá leiklistinni .
Leikstjórinn Guillermo del Toro var að vonum ánægður með að hljóta eftirsóttustu verðlaunin á kvikmyndahátíðinni í Feneyjum , Gullna ljónið , fyrir nýjustu mynd sína , The Shape of Water , og gaf hinu vængjaða ljóni léttan koss í tilefni dagsins .
Tökur á myndinni Ant-Man and the Wasp eru enn í gangi og Paul Rudd , sem leikur mauramanninn , sýndi að hann var í stuði þegar verið var að taka upp eitt atriðið í Atlanta á dögunum . Myndin verður frumsýnd í júní á næsta ári .
Leikstjórinn Rian Johnson og leikararnir í mynd hans , Star Wars : The Last Jedi , eru fyrir löngu byrjuð að kynna myndina á hinum ýmsu viðburðum og munu væntanlega halda því áfram fram að frumsýningunni um miðjan desember . Á myndinni hér fyrir ofan eru þau Josh Gad , Daisy Ridley , John Boyega , Kelly Marie Tran og Mark Hamill ásamt aðalframleiðandanum Kathleen Kennedy og leikstjóranum Rian Johnson . Á myndinni hér til hliðar er svo Daisy Ridley , en hún hefur einstaklega stórt og fallegt bros og fær því stærri mynd af sér .
18 Myndir mánaðarins