Myndir mánaðarins MM Ágúst 2019 Bíóhluti | Page 14

Héraðið Ef enginn segir neitt – þá breytist ekkert Héraðið gerist í litlu samfélagi og segir sögu Ingu, miðaldra kúabónda, sem gerir uppreisn gegn kaupfélaginu á staðnum. Hún reynir að fá aðra bændur í lið með sér en það gengur erfiðlega þar sem kaupfélagið hefur sterk ítök í sveitinni. Héraðið er nýjasta mynd leikstjórans og handritshöfundarins Gríms Hákonarsonar en hann sendi síðast frá sér hina stórgóðu mynd Hrútar sem hlaut ellefu Edduverðlaun, þ. á m. fyrir leikstjórn, handrit, besta leik í aðal- og aukahlutverki karla og sem besta mynd ársins 2015, og Un Certain Regard-verðlaunin í Cannes, sem eru sennilega virtustu og mikilvægustu erlendu kvikmyndaverðlaun sem íslensk kvikmynd hefur hlotið. Það er íslenska fyrirtækið Netop Films sem framleiðir Héraðið í samvinnu við danskt (Profile Pictures), franskt (Haut et Court) og þýskt (One Two Films) fyrirtæki, en síðasta mynd Netop Films var hin vinsæla mynd Hafsteins Gunnars Sigurðssonar, Undir trénu, sem 50 þúsund manns sáu í bíó og hlaut fjölda verðlauna, þ. á m. tólf Edduverðlaun, og varð framlag Íslands til Óskarsverðlauna. Við viljum að sjálfsögðu hvetja allt kvikmyndaáhugafólk til að sjá Héraðið á stóru tjaldi í bíó, en hún verður frumsýnd 14. ágúst. Héraðið Drama 90 mín Það er Arndís Hrönn Egilsdóttir sem fer með aðalhlutverk myndarinnar, en hún hefur leikið bæði í sjónvarpi, kvikmyndum, útvarpi og á sviði. Arndís hefur einnig fengist m.a. við dagskrárgerð fyrir Rás 1 og starfað sem leiðsögumaður fyrir franska ferðamenn á sumrin. Þess má geta til gamans að Arndís er systir tónlistarmannsins Högna sem starfar m.a. með hljómsveitinni Hjaltalín og semur kvikmyndatónlist. Aðalhlutverk: Arndís Hrönn Egilsdóttir, Sigurður Sigurjónsson, Sveinn Ólafur Gunnarsson, Hannes Óli Ágústsson, Hinrik Ólafsson og Edda Björg Eyjólfsdóttir Leikstjórn: Grímur Hákonarson Bíó: Smárabíó, Háskólabíó, Laugarásbíó og Borgarbíó Akureyri Frumsýnd 14. ágúst Punktar .................................................... Aðalframleiðandi myndarinnar f.h. Netop Films var Grímar Jóns- son og um kvikmyndatökuna sá Mart Taniel. Klipping var í höndum Kristjáns Loðmfjörð, Valgeir Sigurðsson samdi tónlistina og um leikmyndahönnun, búningahönnun og förðun/hár sáu Bjarni M. Sigurbjörnsson, Margrét Einarsdóttir og Kristín Júlla Kristjánsdóttir. l Héraðið var tekin upp 2018 á Hvammstanga, Blönduósi og á rjómabúinu Erpsstöðum í Dölum þar sem þessi mynd er tekin. Veistu svarið? Sigurður Sigurjónsson, sem leikur stórt hlutverk í Héraðinu, lék bóndann Gumma í síðustu mynd leik- stjórans Gríms Hákonarsonar, Hrútum, en Gummi hafði eins og menn muna ekki talað við bróður sinn og nágranna, Kidda, í fjörutíu ár. En hver lék Kidda? Sigurður Sigurjónsson leikur kaupfélagsstjórann Eyjólf í Héraðinu. Theodór Júlíusson. 14 Myndir mánaðarins