Myndir mánaðarins MM Ágúst 2019 Bíóhluti | Page 12

Scary Stories to Tell in the Dark Segðu mér sögu Árið er 1968 og yfir bænum Mill Valley hvílir skuggi Bellows- fjölskyldunnar sem bjó fyrr á árum í stóru húsi í útjaðri hans. Þar breytti hin unga Sarah kvöl sinni í sögur sem verða að hræðilegum veruleika þegar nokkrir unglingar uppgötva þær. Bíóhrollvekja ágústmánaðar er myndin Scary Stories to Tell in the Dark sem sækir innblásturinn í samnefnt þriggja binda smá- sagnasafn rithöfundarins Alvins Schwartz, en það kom út á árunum 1981–1991 og var myndskreytt af Stephen Gammell. Sögurnar voru ætlaðar börnum og unglingum og byggðu að stóru leyti á alls konar þjóðsögum sem Alvin hafði safnað saman um árabil. Bækurnar hafa allt frá útgáfu notið mikilla vinsælda í Bandaríkjunum og selst í hátt í tíu milljón eintökum en eru um leið á meðal umdeildustu bóka því þeir eru margir sem telja sögurnar í þeim alls ekki við hæfi barna ... Scary Stories to Tell in the Dark Hrollvekja / Ráðgáta 111 mín Aðalhlutverk: Zoe Margaret Colletti, Michael Garza, Gabriel Rush, Austin Abrams, Dean Norris, Gil Bellows, Lorraine Toussaint, Kathleen Pollard og Austin Zajur Leikstjórn: André Øvredal Bíó: Laugarásbíó, Smárabíó og Borgarbíó Akureyri Frumsýnd 9. ágúst Michael Garza og Zoe Margaret Colletti leika tvo af unglingunum sem uppgötva sögurnar og lenda í framhaldinu í miklum hremmingum. Á milli þeirra er fuglahræða sem kemur talsvert við sögu í myndinni. Punktar .................................................... Það er sjálfur Guillermo del Toro (The Shape of Water, Crimson Peak, Pacific Rim) sem er meðhöfundur handritsins en hann hafði einnig yfirumsjón með framleiðslu myndarinnar og ákvað að fá norska leikstjórann André Øvredal í leikstjórnina, en André á m.a. að baki myndirnar Trolljegeren og The Autopsy of Jane Doe. l Veistu svarið? Leikstjórinn, handritshöfundurinn og framleiðand- inn Guillermo del Toro hefur verið á meðal áhrifa- mestu kvikmyndagerðarmanna um árabil og hlaut tvenn Óskarsverðlaun fyrir sína síðustu mynd, The Shape of Water. En hvað hét fyrsta bíómynd hans? Leikstjórinn André Øvredal og framleiðandinn og handritshöfund- urinn Guillermo del Toro eiga veg og vanda að gerð myndarinnar. Cronos. 12 Myndir mánaðarins