Myndir mánaðarins MM Ágúst 2019 Bíóhluti | Page 10

The Angry Birds Movie 2 Samherjar í neyð! Önnur teiknimyndin um reiðu fuglana og erkióvini þeirra, grænu svínin, kemur í bíó 7. ágúst og eins og í fyrri myndinni er það óborganlegt grín og hugmyndarík barátta sem er í fyrirrúmi. Eftir útreiðina sem svínin fengu síðast fyrir eggjastuldinn hefur leið- togi þeirra hannað viðamikla hefndaraðgerð gegn Rauð og félögum þannig að allt stefnir í ný átök. Þá gerist það að nýr óvinur lætur á sér kræla sem ræður yfir tækni til að komast bæði yfir heimkynni reiðu fuglanna og svínanna. Þetta leiðir til þess að hið ótrúlega gerist, að svínin og fuglarnir ákveða í fyrsta sinn að snúa bökum saman, enda er það bersýnlega eina leiðin til að díla við hina sameiginlegu ógn ... Punktar .................................................... Myndin verður sýnd með bæði íslensku og ensku tali og í ensku útgáfunni eru það þau Jason Sudeikis, Tiffany Haddish, Josh Gad, Danny McBride, Bill Hader, Peter Dinklage, Sterling K. Brown, Maya Rudolph, Eugenio Derbez, Nicki Minaj, Dove Cameron, Awkwafina og Pete Davidson sem ljá helstu karakterunum raddir sínar. l The Angry Birds Movie 2 Teiknimynd 96 mín Íslensk talsetning: Orri Huginn Ágústsson, Salka Sól Eyfeld, Hjálmar Hjálmarsson, Guðjón Davíð Karlsson, Bryndís Ásmundsdóttir, Albert Halldórsson, Jóhann Sigurðarson, Kolfinna Orradóttir, Lára Björk Hall og Viktor Óli Eiríksson Smith Leikstjórn: Hjálmar Hjálmarsson Bíó: Smárabíó, Háskólabíó, Laugarásbíó, Sambíóin Egilshöll og Kringlunni og Borgarbíó Akureyri Frumsýnd 7. ágúst 10 Myndir mánaðarins