Myndir mánaðarins MM September 2019 Bíóhluti | Page 16

Hvítur, hvítur dagur Tilfinningarík og taugatrekkjandi upplifun Hvítur, hvítur dagur er önnur mynd leikstjórans og handrits- höfundarins Hlyns Pálmasonar í fullri lengd en sú fyrri, Vetrarbræður (Vinterbrødre), hlaut sérlega góða dóma og sópaði til sín verðlaunum, þ. á m. bæði Bodil- og Robert-kvik- myndaverðlaununum dönsku sem besta mynd ársins 2017. Hvítur, hvítur dagur hefur nú þegar hlotið fjölda viðurkenninga og frábæra dóma síðan hún var heimsfrumsýnd á Cannes kvikmynda- hátíðinni í maí sl., ekki síst Ingvar E. Sigurðsson í aðalhlutverkinu, en auk hans fara þau Ída Mekkín Hlynsdóttir og Hilmir Snær Guðnason með veigamestu hlutverkin og þykja eins og Ingvar sýna stórleik. Hér segir frá lögreglustjóranum Ingimundi sem hefur verið í starfs- leyfi frá því að eiginkona hans lést af slysförum. Í sorginni einbeitir hann sér að því að byggja hús fyrir dóttur sína og afastelpu, eða allt þar til athygli hans beinist að manni sem hann fer að gruna að hafi átt í ástarsambandi við eiginkonu sína. Fljótlega breytist þessi grunur Ingimundar í þráhyggju og leiðir hann til róttækra gjörða sem óhjákvæmilega bitna einnig á þeim sem standa honum næst. Hvítur, hvítur dagur Drama 109 mín Aðalhlutverk: Ingvar E. Sigurðsson, Ída Mekkín Hlynsdóttir, Hilmir Snær Guðnason, Arnmundur Ernst Backman, Björn Ingi Hilmarsson, Elma Stefanía Ágústsdóttir, Haraldur Ari Stefánsson, Laufey Elías- dóttir, Sara Dögg Ásgeirsdóttir, Sigurður Sigurjónsson, Sverrir Þór Sverrisson og Þór Tulinius Leikstjórn: Hlynur Pálmason Bíó: Smárabíó, Háskólabíó, Laugarásbíó og Borgarbíó Akureyri Frumsýnd 6. september Ingvar E. Sigurðsson og Hilmir Snær Guðnason í hlutverkum sínum í myndinni. Þess má til gamans geta að sú sem leikur afastelpu Ingvars, Ída Mekkín Hlynsdóttir, er dóttir leikstjórans, Hlyns Pálmasonar. Punktar .................................................... Hvítur, hvítur dagur var heimsfrumsýnd á Critic’s Week-hluta hinnar virtu Cannes-kvikmyndahátíðar í maí sl. og vann þar önnur aðalverðlaunin, Rising Star-verðlaunin, sem veitt voru Ingvari E. Sigurðssyni fyrir bestu frammistöðu leikara. Yfir sumarið bætti myndin svo tveimur rósum í hnappagatið þegar Ingvar hlaut einnig verðlaun fyrir besta leik á kvikmyndahátíðinni í Transylvaníu í Rúmeníu og myndin sjálf fékk aðalverðlaunin í Motovun í Króatíu. l Þann 20. ágúst var Hvítur, hvítur dagur valin í forkeppni Evrópsku kvikmyndaverðlaunanna sem veitt verða 7. desember og sama dag tilnefnd til Kvikmynda­ verðlauna Norður­ landaráðs ásamt fjórum öðrum norrænum myndum, en þau verðlaun verða veitt 29. október í tengslum við þing Norður­landaráðs í Stokkhólmi. l „... eins og boxbardagi tveggja stórleikara ... og jú, trúið mér þegar ég segi: Ingvar E. hefur grínlaust aldrei verið betri í bíómynd.“ Tengivagninn RÚV - Ásgeir H. Ingólfsson. Veistu svarið? Það þarf ekki að kynna Ingvar E. Sigurðsson fyrir neinum enda er hann einn besti leikari sem Íslend- ingar hafa eignast. En fyrir leik í hvaða tveimur mynd- um hlaut hann Edduverðlaunin árið 2014, fyrir aðal- hlutverk í annarri og aukahlutverk í hinni? Hross í oss og Málmhaus. 16 Myndir mánaðarins