Myndir mánaðarins MM Október 2019 Bíóhluti | Page 29
Addams-fjölskyldan
Og þú sem hélst að þín fjölskylda væri skrítin
Heimsins furðulegasta fjölskylda, Addams-fjölskyldan, hefur
nýverið flutt sig um set og hreiðrað um sig í gömlu húsi í New
Jersey þar sem krakkarnir, Wednesday og Pugsley, þurfa
nú að ganga menntaveginn eins og önnur börn. Ekki líður á
löngu uns þessi sérstaka fjölskylda er búin að gera allt vit-
laust á svæðinu án þess þó að gera sér grein fyrir út af hverju!
Hin vægast sagt sérstaka og algjörlega ódrepandi Addams-fjöl-
skylda mætir aftur í bíó 25. október eftir 26 ára hlé, í þetta sinn
í formi teiknimyndar þar sem hinn upprunalegi, og oft og tíðum
bleksvarti húmor höfundarins, Charles Addams, sem var einmitt
fæddur og uppalinn í Jersey, er í heiðri hafður frá upphafi til enda ...
Addams-fjölskyldan
Fjölskylduskemmtun
Aldurstakmark ekki fyrirliggjandi fyrir prentun
105
mín
Íslensk talsetning: Valur Freyr Einarsson, Esther Talia Casey, Þórunn
Lárusdóttir, Þuríður Blær Jóhannsdóttir, Þórey Birgisdóttir, Lúkas Emil
Johansen, Eyþór Ingi Gunnlaugsson, Hanna María Karlsdóttir, o.fl.
Þýðing: Haraldur Jóhannsson Leikstjórn: Orri Huginn Ágústsson
Bíó: Laugarásbíó, Smárabíó, Háskólabíó, Sambíóið Álfabakka og
Borgarbíó Akureyri
Frumsýnd 25. október
Punktar ....................................................
Segja má að hér snúi Addams-fjölskyldan aftur til upprunans því
útlit persónanna og umhverfi þeirra er fyrst og fremst byggt á
upphaflegu teiknimyndaseríunni eftir Charles Samuel Addams
sem birtist fyrst í dagblaðinu The New Yorker árið 1938. Um leið er
þetta í fyrsta sinn sem teiknimynd í fullri lengd er gerð um Addams-
fjölskylduna því eins og menn muna voru 1991- og 1993-myndirn-
ar, The Addams Family og Addams Family Values, leiknar myndir.
l
Hermt er að fyrirmyndir Charles Addams að þeim Gomez og Mort-
icu Addams hafi verið leikararnir Peter Lorre og Gloria Swanson.
l
Myndin verður sýnd bæði með íslenskri og enskri talsetningu en í
ensku útgáfunni eru það þau Oscar Isaac, Charlize Theron, Chloë
Grace Moretz, Finn Wolfhard, Nick Kroll, Snoop Dogg, Bette Midler,
Allison Janney, Martin Short, Pom Klementieff, Elsie Fisher, Maggie
Wheeler og Catherine O’Hara sem tala fyrir helstu persónurnar.
l
Fyrir utan hið hefðbundna og þekkta fjölskyldustef Addams-fjöl-
skyldunnar inniheldur myndin fullt af flottri tónlist eftir Jeff og
Mychael Danna, og m.a. lögin Haunted Heart með Christinu Aguil-
era og My Family með Migos, Karol G, Rock Mafia og Snoop Dogg.
l
Myndir mánaðarins
29