Myndir mánaðarins MM Nóvember 2019 Bíóhluti | Page 31
Countdown
Hvað áttu langt eftir?
Quinn Harris er ung hjúkrunarkona sem dag einn fær veður af
nýju appi, Countdown, sem samstarfsfólk hennar hefur verið
að hlaða niður og segir til um hvað það eigi langt eftir ólifað.
Quinn ákveður líka að hlaða appinu niður en bregður í brún
þegar það segir að hún eigi bara um þrjá daga eftir af ævinni.
Countdown er þrælskemmtilegur tryllir með yfirnáttúrulegu ívafi
auk þess sem húmorinn er aldrei langt undan þannig að áhorfend-
ur vita stundum ekki hvort þeir eigi að hrökkva í kút eða hlæja.
Leikkonan Elizabeth Lail þykir fara hér á miklum kostum í hlutverki
Quinn Harris sem líst ekkert á blikuna þegar appið segir henni að
hún eigi bara tæpa þrjá daga eftir. Fyrst heldur hún að þetta sé
bara hrekkur og grín en uppgötvar að svo er ekki þegar aðrir sem
appið sagði að ættu minna líf eftir en hún taka að týna tölunni ...
29. nóvember
Hjúkrunarkonan Quinn Harris er spennt að prófa nýja appið sem allir
eru að tala um en verður ekki um sel þegar það gefur til kynna að hún
eigi ekki nema tæpa þrjá daga ólifaða. Hvað gera hjúkrunarkonur þá?
Countdown
Tryllir
90
mín
Aðalhlutverk: Elizabeth Lail, Jordan Calloway, Talitha Bateman, Peter
Facinelli, Dillon Lane, Tichina Arnold, Tom Segura, Lana McKissack,
Anne Winters og Matt Letscher Leikstjórn: Justin Dec Bíó: Laugar-
ásbíó, Sambíóið Egilshöll og Borgarbíó Akureyri
Frumsýnd 29. nóvember
Punktar ....................................................
Countdown er fyrsta mynd leikstjórans Justins Dec sem skrifaði
einnig handritið. Justin er þó enginn nýgræðingur í bransanum,
hefur t.d. sent frá sér nokkrar stuttmyndir, þ. á m. verðlaunamyndina
Rolling árið 2008, og verið aðstoðarleikstjóri ýmissa mynda, nú
síðast Instant Family og Daddy’s Home 2 eftir Sean Anders.
l
Elizabeth Lail sem leikur aðalhlutverkið í myndinni, hjúkrunarkon-
una Quinn Harris, hefur átt vaxandi velgegni að fagna í Banda-
ríkjunum á undanförnum árum sem segja má að hafi hafist þegar
hún lék Önnu prinsessu í ABC-sjónvarpsþáttunum Once Upon a
Time og síðan í Netflix-þáttaröðinni You sem var frumsýnd í fyrra.
l
Þetta skemmtilega app sýnir upp á sekúndu hvenær fólk deyr.
Veistu svarið?
Talitha Bateman leikur stórt hlutverk í Countdown en
hún er m.a. þekkt úr myndum eins og The 5th Wave,
So B. It, Nine Lives, Geostorm og Love, Simon, og fyrir
að leika Janice í leikstjórn Davids F. Sandberg í einni
af betri hrollvekjum ársins 2017. Hvaða hrollvekju?
Til að byrja með er Quinn auðvitað að vona að „dauða-appið“ sé bara
einhvers konar grín eða hrekkur en kemst brátt að því eins og aðrir
að það hefur hingað til haft rétt fyrir sér í öllum öðrum tilfellum.
Annabelle: Creation.
Myndir mánaðarins
31