Myndir mánaðarins MM Nóvember 2019 Bíóhluti | Page 30
The Good Liar
Stundum er lygin sannleikur
Roy Courtnay er svindlari sem lifir á því að svíkja peninga af
grunlausum fórnarlömbum. Dag einn telur hann sig hafa hitt
á gullnámu þegar hann kynnist efnaðri ekkju, Betty McLeish,
sem hann á auðvelt með að vefja um fingur sér enda fer hann
létt með að setja upp sjarma séntilmannsins. En þegar áætlun
hans um að losa Betty við auðæfin byrjar að fara úrskeiðis
hefst ótrúleg atburðarás sem enginn hefði getað séð fyrir.
The Good Liar hefur hvergi verið sýnd þegar þetta er skrifað en
orðrómurinn segir að hér sé um að ræða mynd í hæsta gæðaflokki
enda er sagan sem byggt er á alveg frábær auk þess sem aðstand-
endur og leikarar eru ekki af verri endanum. Eins og í öllum góðum
spennusögum reynast hlutirnir ekki vera það sem þeir sýnast í
fyrstu því undir yfirborðinu er allt önnur saga sem kemur á óvart ...
The Good Liar
Ian McKellen og Helen Mirren leika þau Roy Courtnay og Betty Mc-
Leish sem hittast á stefnumótasíðu og ákveða síðan að kynnast.
Spennumynd
109
mín
Punktar ....................................................
The Good Liar er byggð á samnefndri bók Nicholas Searle sem hét
reyndar The Reconing þegar hún kom út haustið 2014. Sagan vakti
gríðarlega athygli og er á meðal margra talin einhver albesta
spennusaga sem komið hefur út á undanförnum árum. Það er
Jeffrey Hatcher sem skrifar handritið en hann skrifaði síðast hand-
ritið að Mr. Holmes sem Ian McKellen lék einnig aðalhlutverkið í.
l
Aðalhlutverk: Helen Mirren, Ian McKellen, Jim Carter, Russell Tovey,
Mark Lewis Jones, Céline Buckens, Laurie Davidson, Jóhannes Haukur
Jóhannesson og Phil Dunster Leikstjórn: Bill Condon Bíó: Sambíóin
Álfabakka, Kringlunni, Egilshöll, Keflavík og Akureyri, Bíóhúsið Sel-
fossi, Ísafjarðarbíó og Eyjabíó
Frumsýnd 29. nóvember
Leikstjóri myndarinnar er hinn margverðlaunaði Bill Condon sem
hlaut m.a. Óskarsverðlaunin árið 1998 fyrir handrit sitt að myndinni
Gods and Monsters en hún skartaði líka Ian McKellen í aðalhlutverki.
l
Okkar maður, Jóhannes Haukur Jóhannesson, fer með nokkuð
stórt hlutverk í myndinni og má sjá hann í stiklum myndarinnar.
l
Roy Courtnay reynist ekki vera sá sem hann þykist vera.
Veistu svarið?
Þetta er í fyrsta sinn sem þau Helen Mirren og Ian
McKellen leika saman í bíómynd þótt þau hafi
oft starfað saman á sviði og hafi nánast alist upp
saman í bresku leikhúslífi. En fyrir leik í hvaða mynd
var Ian tilnefndur til Óskarsverðlauna árið 2002?
The Lord of the Rings: The Fellowship of the Ring.
30
Myndir mánaðarins
Þau Helen Mirren og Ian McKellen þykja mjög líkleg til að hljóta til-
nefningar til allra helstu kvikmyndaverðlaunanna fyrir The Good Liar.