Myndir mánaðarins MM Maí 2019 Bíóhluti | Page 26

Aladdin Gættu að því sem þú óskar þér Ævintýrið um Aladdín, sem sótt er í uppfærðu útgáfuna af arabísku þjóðsögunum Þúsund og ein nótt og Disney gerði frábæra teiknimynd eftir árið 1992, er hér fært í nýjan, litríkan og spennandi búning þar sem tónlist og dans kemur mikið við sögu og grínið er að sjálfsögðu aldrei langt undan. Það er Guy Ritchie sem leikstýrir þessari nýju og fjörugu útfærslu af sögunni um Aladdín og töfralampann og í aðalhlutverkum eru þau Mena Massoud og Naomi Scott sem leika Aladdín og Jasmine prinsessu, Will Smith sem leikur andann og Marwan Kenzari sem leikur stórvesírinn Jafar. Sagan er í stuttu máli um þjófinn og „stræt- isrottuna“ Aladdín sem Jafar, stórvesírinn valdagráðugi, sendir út af örkinni til að finna forláta lampa í helli einum og færa sér. Aladdín veit ekki fyrr en hann hefur lampann í höndunum að í honum býr andi sem getur veitt og uppfyllt þrjár óskir þess sem á honum heldur. Það verður til þess að Aladdín ákveður að standa ekki við samkomulagið við Jafar heldur nýta sér óskirnar í eigin þágu og til að vinna ástir dóttur soldánsins, hinnar fögru Jasmín prinsessu. En Jafar gefst ekki svo glatt upp og staðráðinn í að komast yfir lamp- ann sendir hann sína menn af stað til að klófesta Aladdín ... Aladdin Ævintýri Aldurstakmark og lengd ekki fyrirliggjandi fyrir prentun Aðalhlutverk: Mena Massoud, Naomi Scott, Will Smith, Marwan Kenzari, Alan Tudyk, Billy Magnussen, Nasim Pedrad, Navid Negahban, og Numan Acar Leikstjórn: Guy Ritchie Bíó: Sambíóin Álfabakka, Kringlunni, Egilshöll, Akureyri og Keflavík, Háskólabíó, Selfossbíó, Eyjabíó, Ísafjarðarbíó, Bíóhöllin Akranesi, Skjaldborgarbíó og Króksbíó Frumsýnd 22. maí Naomi Scott og Mena Massoud leika þau Jasmín prinsessu og Aladdín. Punktar .................................................... Sagan um Aladdín og töfralampann er í raun ekki að finna í hinum upprunalegu arabísku þjóðsögum sem saman nefnast Þúsund og ein nótt heldur var henni bætt inn í sagnabálkinn á 19. öld. Hún hefur þó allar götur síðan verið þekktasta sagan í Þúsund og einni nótt ásamt sögunni, eða sögunum sjö, um Sindbað sæfara. l Tónlistin í myndinni er að mestu eftir Alan Menken sem samdi Óskarsverðlaunatónlistina við teiknimyndina árið 1992 en einnig er hér að finna ný lög og texta eftir þá Benji Pasek og Justin Paul sem hlutu m.a. Óskarsverðlaunin fyrir tónlist sína í myndinni La La Land. l Í hlutverki andans sem býr í lampanum og getur uppfyllt þrjár óskir eiganda síns er Will Smith sem sagður er fara á kostum í myndinni. Veistu svarið? Tvær af uppáhaldspersónum margra úr teikni- myndinni frá 1992 voru hinn kaldhæðni páfa- gaukur Jafars og hinn úrræðagóði api sem fylgir Aladdín. Þessar tvær persónur eru að sjálfsögðu með í nýju myndinni, en hvað heita þær? Marwan Kenzari leikur hinn valdagráðuga Jafar stórvesír. Jagó og Abú. 26 Myndir mánaðarins