Myndir mánaðarins MM Maí 2019 Bíóhluti | Page 23

Poms Látum drauminn rætast Martha (Diane Keaton) er orðin dálítið leið á hlutunum og ákveður að fara á elliheimili til að deyja (að eigin sögn). En undir þessu hrjúfa yfirborði býr kraftur og áræðni sem kemur vel í ljós þegar hún fær þá hugdettu að stofna hvatningarsveit (cheer leading squad) ásamt hinum konunum á elliheimilinu og taka þátt í hvatningarsveitakeppni fyrir 18 ára og eldri. Það má segja að hér taki saman höndum fólkið sem stóð að gerð Bad Moms-myndanna annars vegar og hinnar stórskemmtilegu Bookclub hins vegar og ættu því þeir sem sáu þær myndir ekki að vera í vafa um hvers konar bíóskemmtun er hér á ferðinni. Eins og í þeim myndum eru það fyrst og fremst þekktar leikkonur sem fara með aðalhlutverkin og í þetta sinn eru það auk Diane Keaton þær Pam Grier, Rhea Perlman, Celia Weston, Jacki Weaver, Patricia French, Alisha Boe, Carol Sutton og Ginny MacColl sem leiða hópinn. Að sjálfsögðu fær hugmynd Mörthu um hvatningarsveitina frekar dræmar undirtektir hjá stjórnendum elliheimilisins, a.m.k. í byrjun enda virðast fæstar konurnar vera í því formi sem slíkt útheimtir, hvað þá að vera færar um að taka þátt í keppni á móti stúlkum sem eru meira en 50 árum yngri en þær. En lengi lifir í gömlum glæðum ... Poms Gamanmynd 91 mín Aðalhlutverk: Diane Keaton, Pam Grier, Rhea Perlman, Celia Weston, Jacki Weaver, Bruce McGill, Charlie Tahan, Patricia French, Alisha Boe og Phyllis Somerville Leikstjórn: Zara Hayes Bíó: Smárabíó, Háskólabíó og Borgarbíó Akureyri Frumsýnd 17. maí Þegar Martha kemur á elliheimilið tilkynnir hún móttökunefndinni að hún hafi lítinn áhuga á að taka þátt í félagsstörfum enda sé hún bara komin á svæðið til að deyja. En þetta á auðvitað eftir að breytast. Punktar .................................................... Poms er fyrsta bíómynd leikstjórans og handritshöfundarins Zöru Hayes en hún á m.a. að baki margar heimildarmyndir, þ. á m. verð- launamyndina Battle of the Sexes, hina áhrifamiklu Clothes to Die For og sjónvarpsþáttaröðina Dian Fossey: Secrets in the Mist. l Veistu svarið? Hin 71 árs gamla Rhea Perlman er ein af þeim sem leika stórt hlutverk í hvatningarsveit Mörthu, en Rhea hefur eins og margir vita verið gift Danny DeVito allar götur síðan 1982. Samt sem áður hafa þau aðeins leikið saman í einni bíómynd. Hvaða? Uppistaðan í leikhópnum eru þekktar leikkonur fyrri ára og hér má m.a. sjá þær Rheu Perlman, Diane Keaton, Pam Grier, Jackie Weaver, Phyllis Somerville, Carol Sutton og Ginny MacColl í hlutverkum sínum. Matilda (1996). Myndir mánaðarins 23