Myndir mánaðarins MM Maí 2019 Bíóhluti | Page 16

Eden Allir þrá paradís Eden er önnur mynd leikstjórans Snævars Sölvasonar en sú fyrri, hin stórskemmtilega Albatross sem gerðist að miklu leyti á golfvellinum í Bolungarvík, var frumsýnd árið 2015. Sagan í Eden og handritið er einnig eftir Snævar en hér segir frá parinu Lóu og Óliver sem hefur framfleytt sér með fíkniefnasölu en dreymir um að skapa sér betra líf í framtíðinni. Þegar þau síðan lenda upp á kant við undirheimaöflin ákveða þau að leggja allt sitt undir þrátt fyrir að það gæti kostað þau baráttu upp á líf og dauða. Með aðalhlutverkin í myndinni fara Telma Huld Jóhannesdóttir, sem hefur getið sér gott orð á leiksviðinu og í kvikmyndum og sjón- varpsþáttum á borð við Illsku, Webcam og Rétt, og Hansel Eagle, en hann fór einmitt með aðalhlutverkið í fyrri mynd Snævars, Albatross. Myndin skartar einnig leikurunum Arnari Jónssyni og Steinunni Ólínu Þorsteinsdóttur en önnur hlutverk eru fyrst og fremst skipuð ungum og upprennandi leikurum. Þar á meðal eru Tinna Sverrisdóttir, Gunnar Marís, Blær Hinriksson, Valgeir Skag- fjörð, Einar Viðar G. Thoroddsen, Hjalti P. Finnsson og Róbert Gísla- son, sem er sonur Eddu Björgvinsdóttur og Gísla Rúnars Jónssonar. Eden verður frumsýnd 10. maí og hvetjum við að sjálfsögðu allt íslenskt kvikmyndaáhugafólk til að skella sér á hana sem allra fyrst! Eden Drama / Spenna 87 mín Aðalhlutverk: Telma Huld Jóhannesdóttir, Hansel Eagle, Arnar Jónsson, Hjalti P. Finnsson, Gunnar Marís, Einar Viðar G. Thoroddsen, Tinna Sverrisdóttir og Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir Leikstjórn: Snævar Sölvason Bíó: Smárabíó, Háskólabíó, Laugarásbíó og Borgarbíó Akureyri Frumsýnd 10. maí Með aðalhlutverkin í Eden, hlutverk þeirra Lóu og Ólivers, fara þau Telma Huld Jóhannesdóttir og Hansel Eagle. Punktar .................................................... Myndin, sem var nánast öll tekin upp í Reykjavík, inniheldur kvik- myndatónlist eftir Magnús Jóhann Ragnarsson en lagasmíðarnar voru í höndum Þormóðs Eiríkssonar. Gott dæmi um samstarf þeirra félaga má heyra í skemmtilegri stiklu myndarinnar þar sem hljóm- arnir í fyrri hlutanum eru hugsmíð Magnúsar en rapplagið í þeim seinni, sem er sungið af Ísak Sigurðssyni, er eftir Þormóð . l Veistu svarið? Eins og komið er inn á í kynningunni hér gerðist fyrsta mynd Snævars Sölvasonar, Albatross, að mestu á golfvellinum í Bolungarvík og sagði frá ævintýrum starfsmanna hans í blíðu og stríðu. En hver lék þar vallarstjórann eitilharða, Kjartan? Eden hefur verið lýst sem villtri blöndu af spennu og kómík. Pálmi Gestsson. 16 Myndir mánaðarins