Myndir mánaðarins MM Maí 2019 Bíóhluti | Page 15

Hellboy Með illu skal illt út reka Anung Un Rama, öðru nafni Hellboy, er að hálfu leyti djöfull og að hálfu leyti mennskur, alinn upp af prófessor Trevor Bruttenholm og starfar fyrir B.P.R.D. (Bureau for Paranormal Research and Defense) að því að uppræta ýmis ill öfl sem ógna mannkyninu. Þótt hann líti út eins og djöfull og sé með horn hala og klaufir, er hjarta hans mennskt og slær fyrir réttlæti. Hellboy er einnig rammur að afli, ónæmur fyrir sjúkdómum og gæddur yfirnáttúrulegum hæfileikum til að lækna og græða líkama sinn af öllum sárum sem hann hlýtur, bæði fljótt og vel. Hægri hönd hans er úr grjóti og þeir eru ekki margir sem þurfa meira en eitt högg frá henni til að hverfa endanlega yfir til forfeðra sinna. Sagan hefst reyndar löngu áður en Hellboy fæðist, þ.e. þegar Artúr konungur stöðvar blóðdrottninguna Nimue og hennar illu áform um að leggja banvæn álög á þegna hans. En þótt Artúr hafi síðan bútað Nimue í sundur með sverðinu Excalibur og falið líkamsleifar hennar víða um England hefur sú hætta ávallt verið fyrir hendi að einhver óvætturinn nái að vekja hana til lífsins á ný. Sú stund er ein- mitt runnin upp núna og þar með fær Hellboy nóg að gera! Hellboy Ofurhetjur / Hasar / Ævintýri 120 mín Aðalhlutverk: David Harbour, Milla Jovovich, Ian McShane, Sasha Lane, Daniel Dae Kim, Thomas Haden Church, Penelope Mitchell, Sophie Okonedo og Brian Gleeson Leikstjórn: Neil Marshall Bíó: Sambíóin Álfabakka, Kringlunni, Egilshöll, Akureyri og Keflavík, Selfossbíó, Eyjabíó og Ísafjarðarbíó Frumsýnd 10. maí Anung Un Rama, eða Hellboy öðru nafni, er leikinn af David Harbour. Punktar .................................................... l Hellboy er í leikstjórn Neils Marshall (Dog Soldiers, Centurion, Dooms- day) sem tók við taumunum úr hendi Guillermos del Toro en hann gerði eins og kunnugt er Hellboy-myndirnar tvær árin 2004 og 2008 með Ron Perlman í titilhlutverkinu. Átti þessi mynd upphaflega að verða þriðja myndin í þeirri seríu en frá því var fallið árið 2014 og ákveðið að byrja upp á nýtt, í þetta sinn með David Harbour í aðalhlutverki. Um uppruna- sögu er því að ræða, a.m.k. til að byrja með, en annars sækir myndin efnið í sögurnar, eða öllu heldur söguseríurnar Darkness Calls, The Wild Hunt og The Storm and the Fury sem komu út á árunum 2007–2010. Milla Jovovich leikur Nimue, eða Blóðdrottninguna, sem á harma að hefna og ætlar sér að leiða miklar hörmungar yfir mannkynið. Veistu svarið? David Harbour, sem leikur Hellboy, hefur leikið í ýmsum myndum, en er samt einna þekktastur fyrir að leika Jim Hopper í vinsælli sjónvarpsseríu og hlaut m.a. tilnefningu til Golden Globe-verðlauna fyrir það hlutverk. Hvaða sjónvarpsseríu? Ian McShane leikur skrímslabanann prófessor Broom, eða Trevor Brutt- enholm, en hann er einnig fóstur- og uppeldisfaðir Anungs Un Rama. Stranger Things. Myndir mánaðarins 15