Myndir mánaðarins MM Maí 2019 Bíóhluti | Page 14

Polaroid Ekki smella af Menntaskólaneminn Bird Fisher starfar með skólanum í antík- verslun þar sem hún rekst dag einn á forláta polaroid-vél sem enn virðist í fínu lagi. Bird byrjar að taka myndir af sjálfri sér og skólafélögum sínum en ekki líður á löngu uns hún gerir sér grein fyrir að þeim sem myndaðir eru með vélinni eru búin hroðaleg örlög. Sú uppgötvun kemur hins vegar allt of seint. Það svífur ótti og skelfing yfir vötnunum í spennutryllinum Polaroid enda komast þeir sem hafa verið myndaðir með vélinni að því að þeir eru sennilega dauðadæmdir finni þeir ekki leið til að koma böndum á mátt vélarinnar. Tilraunir til að eyðileggja myndirnar skapa bara enn meiri skelfingu því það sem kemur fyrir þær kemur einnig fyrir þá sem eru á þeim og myndavélina sjálfa er ekki heldur hægt að eyðileggja. Góð ráð verða því dýr en í æsilegu kapphlaupi við tímann áttar Bird sig á því að e.t.v. liggur lausnin í fortíðinni ... Polaroid Kathryn Prescott leikur menntaskólanemann Bird Fitcher sem finnur gamla polaroid-myndavél og gerir sér auðvitað enga grein fyrir því í fyrstu að hver sá sem hún myndar mætir hræðilegum örlögum. Tryllir 88 mín Aðalhlutverk: Kathryn Prescott, Tyler Young, Samantha Logan, Mitch Pileggi, Keenan Tracey, Priscilla Quintana, Katie Stevens, Davi Santos, Shauna Macdonald og Javier Botet Leikstjórn: Lars Klevberg Bíó: Smárabíó, Háskólabíó og Borgarbíó Akureyri Frumsýnd 3. maí Punktar .................................................... Höfundur Polaroid er norski leikstjórinn Lars Klevberg og er myndin byggð á samnefndri stuttmynd hans frá árinu 2015 sem vakti víða verulega athygli enda verulega vel gerð í alla staði. l Polaroid-myndavélar komu fyrst á markað árið 1947 og þóttu mikil undratæki enda framkölluðu þær myndirnar sjálfar á aðeins nokkrum mínútum eftir að þær voru teknar. Vélarnar nutu mikilla vinsælda næstu áratugi og þess má geta að sú sem Bird finnur í myndinni er af gerðinni Polaroid SX-70 sem framleidd var árið 1972. l Mitch Pileggi leikur lögreglumanninn Pembroke sem í fyrstu er van- trúaður á ofurmátt myndavélarinnar en á eftir að skipta um skoðun. Veistu svarið? Eins og kemur fram hér í kynningunni er Polaroid eftir norska leikstjórann Lars Klevberg. Hann mun næst senda frá sér endurgerð myndarinnar Child’s Play frá árinu 1988, en í henni má segja að skelfileg dúkka eigi sviðið. Hvað heitir sú fræga dúkka? Þessi myndataka af nokkrum félögum Bird á góðri stundu á eftir að hafa alvarlegar afleiðingar fyrir þau öll. Priscilla Quintana, Samantha Logan, Keenan Tracey og Tyler Young í hlutverkum sínum í myndinni. Chucky. 14 Myndir mánaðarins