Myndir mánaðarins MM Maí 2019 Bíóhluti | Page 10

Bíófréttir – Væntanlegt Hvers óska leikföng sér? Fjórða Toy Story-myndin verður ein af mynd- um júnímánaðar í kvikmyndahúsunum en níu ár eru nú liðin síðan þriðja myndin var frumsýnd og 24 ár síðan fyrsta myndin, sem var einnig fyrsta 100% tölvuteiknaða mynd sögunnar, reyndist upphafið að þeirri sigur- göngu Pixar-fyrirtækisins sem enn stendur yfir og getið hefur af sér 21 af vinsælustu teiknimyndum síðastliðins aldarfjórðungs. Í Toy Story 4 mæta að sjálfsögðu öll gömlu og góðu leikföngin til leiks á ný með Vidda og Bósa ljósár í fararbroddi. Auk þess hafa nokkur ný leikföng bæst í hópinn, þar á meðal plastskeið (eða gaffall – sjá myndina hér fyrir ofan), sem eigandi leikfanganna, Bonnie, bjó sjálf til og á eftir að verða örlagavaldurinn í sögunni. Um það fjöllum við nánar í næsta blaði og hvetjum að sjálfsögðu alla til að skoða stiklurnar. Hin dökka hlið Jane Grey Aðdáendur Marvel-myndanna um X-fólkið, X-Men, fá góða ástæðu til að reima á sig skóna í byrjun júní þegar Dark Phoenix verður frumsýnd en hún er óbeint framhald X-Men: Apocalypse og gerist nokkrum árum eftir atburðina í þeirri mynd, nánar tiltekið árið 1992. Eftir það sem gerðist í Apocalypse hefur X-fólkið áunnið sér aukið traust í samfélaginu og sinnir ýmsum útköllum sem mennskir ættu erfitt með að taka að sér. Í einu slíku útkalli, þar sem bjarga þarf nokkrum geimförum úr háska, verður slys sem leiðir til þess að hið innra og illa eðli Jane Grey brýst í gegn og yfirtekur líkama hennar. Þetta illa sjálf Jane Grey nefnist Dark Phoenix og býr að meiri kröftum en allt X-fólkið ræður yfir samanlagt. Í gang fer hrikaleg barátta sem X-fólkið og mannkynið mun tapa finnist ekki einhver ráð. Við fjöllum auðvitað betur um þessa hörkumynd í næsta blaði en hvetjum aðdáendur til að skoða nýjustu stikluna sem er frábær. Það er Sophie Turner sem leikur Jane Grey/Dark Phoenix. 10 Myndir mánaðarins Hið geggjaða í tilverunni Önnur tölvuteiknuð mynd sem á örugglega eftir að gera það gott í kvikmyndahúsunum í júní er framhaldið af myndinni Leynilíf gæludýra, eða The Secret Life of Pets 2, sem gerð er af teiknimyndafyrirtækinu Illumi- nation, en það gerði m.a. myndirnar um Gru glæpon og litlu gulu skósveinana, Minions. Í myndinni, sem frumsýna á í byrjun júní, skreppum við aftur í heimsókn til voffans Max og allra hinna gæludýranna sem hann þekkir og við kynntumst í fyrstu myndinni og skyggnumst nú enn dýpra inn í líf þeirra þegar eigendurnir eru ekki nærri. Í þetta sinn eru það tilfinningar þeirra sem verða í brennidepli og þá ekki síður geðheilsan sem eins og allir vita sem átt hafa gæludýr getur verið misjöfn hjá þeim eins og mannfólkinu.