Myndir mánaðarins MM Júní 2019 DVD VOD Tleikir | Page 26
Tölvuleikir
Crash Team Racing Nitro-Fueled
Crash er mættur aftur í bílstjórasætið!
Í Crash Team Racing Nitro-Fueled fá leikmenn brot af því besta úr Crash Team
Racing, Crash Nitro Kart og Crash Tag Team Racing, en þessi pakki inniheldur
endurgerð allra þessara leikja. Í pakkanum er að sjálfsögðu alveg heill hellingur
af brautum og kartbílum ásamt helstu persónunum úr Crash Bandicoot-leikj-
unum og geta leikmenn spilað einir og sér eða með öðrum í gegnum netið.
Verður þú fyrst/ur í mark í þessum hraða og skemmtilega kartleik?
Tegund: Kartleikur
Kemur út á: PS4, Switch og Xbox One
PEGI aldurstakmark: 7+
Útgáfudagur: 21. júní
Framleiðandi: Activision
Útgefandi: Sena
26
Myndir mánaðarins