Myndir mánaðarins MM Júní 2019 DVD VOD Tleikir | Page 24

Hefurðu séð þessar? Komnar út og fáanlegar á sjónvarpsleigunum 24 The Mule Instant Family Cold Pursuit The Mule er nýjasta mynd Clints East- wood sem jafnframt leikur garðyrkjufræð- inginn Earl Stone sem vegna fjárhags- vandræða tók upp á því á gamals aldri að smygla eiturlyfjum fyrir mexíkóskan eiturlyfjahring frá landamærum Banda- ríkjanna og Mexíkó til Michigan og Arizona. Frábær mynd í alla staði. Þegar barnlausu hjónin Pete og Ellie sjá auglýsingu frá ættleiðingastofnun ákveða þau að skoða málið. Sú ákvörðun á eftir að vinda upp á sig þegar „skoð- unarferðin“ leiðir til þess að þau verða skyndilega foreldrar þriggja systkina sem eiga erfiða reynslu að baki. Nú þurfa þau að standa sig í foreldrahlutverkinu! Nels Coxman er heiðursborgari smá- bæjarins Kehoe í Klettafjöllum og hefur um árabil þjónað bæði bæjarbúum og öðrum vegfarendum með því að halda vegum opnum með öflugum snjó- ruðningstækjum sem hann ræður yfir. Þegar lögreglan tilkynnir honum að sonur hans hafi fundist látinn breytist allt. Sannsögulegt Gamandrama Spennumynd Mary Poppins Returns Aquaman Spider-Man: Into the ... Mary Poppins er komin aftur, 55 árum eftir að samnefnd mynd um hana og Banks-fjölskylduna sló í gegn um allan heim. Í það skiptið var það Julie Andrews sem lék Mary en í þetta sinn er það Emily Blunt sem leikur þessa söngelsku, ramm- göldróttu og fljúgandi barnfóstru sem er úrræðagóð með afbrigðum. Aquaman er sjötta myndin í hinum sameinaða ofurhetjuheimi DC-Comics á eftir Man of Steel, Batman v Superman: Dawn of Justice, Suicide Squad, Wonder Woman og Justice League. Hér er um upprunasögu að ræða sem hefst þegar Arthur Curry kemst að því að í raun er hann hinn eini sanni konungur Atlantis. Teiknimyndin Spider-Man: Into the Spider- Verse er stórskemmtilegt hliðarævintýri frá hinum venjulegu Spider-Man-mynd- um þar sem aðalsöguhetjan Miles Moral- es telur sig hinn eina og sanna köngulóar- mann – en hefur rangt fyrir sér. Myndin hlaut Óskarsverðlaunin sem besta teikni- mynd ársins 2018. Ævintýri Ævintýri/ofurhetjur Teiknimynd Vice A Star Is Born Endurkoma hetjunnar Kvikmyndin Vice fjallar á gamansaman en flugbeittan hátt um Dick Cheney, fyrrverandi varaforseta Bandaríkjanna í stjórn Georges W. Bush á árunum 2001 til 2009, en Cheney notaði áhrif sín og völd til að fara sínu fram og er margt af því sem hann gerði verulega umdeilt og verður það um ókomin ár. Tónlistarmaðurinn Jackson Maine má muna sinn fífil fegurri og þótt hann njóti enn hylli gamalla aðdáenda er ferill hans á fallanda fæti, ekki síst vegna óhóflegrar drykkju. Þegar hann hittir hina efnilegu leik- og söngkonu Ally má segja að hann fái nýtt markmið í lífinu: Að aðstoða Ally við að ná frægð og frama. Það er óhætt að mæla með þessari eld- hressu gamanmynd sem er sprenghlægi- leg á löngum köflum og nálgast að vera hin besti farsi. Henni hefur verið lýst sem nokkurs konar Jane Austin-sögu eins og P. G. Wodehouse hefði skrifað hana og sennilega er það ein besta lýsingin sem hægt er að gefa á henni í stuttu máli. Sannsögulegt Drama/tónlist Gamanmynd Mortal Engines Bohemian Rhapsody The Kid Who Would Be King Mortal Engines kemur úr smiðju Peters Jackson og er byggð á margverðlaunaðri bók breska rithöfundarins Philips Reeve, en hún kom út í íslenskri þýðingu síðast- liðið sumar undir heitinu Vítisvélar. Þetta er magnað framtíðarævintýri sem gerist eftir um þrjú þúsund ár og skartar Heru Hilmarsdóttur í aðalhlutverki. Í verðlaunamyndinni Bohemian Rhaps- ody er farið yfir feril hljómsveitarinnar Queen allt frá byrjun, með sérstakri áherslu á hlut píanóleikarans, laga- og textahöfundarins og eins besta rokk- söngvara allra tíma, Freddies Mercury, sem lést langt um aldur fram árið 1991, aðeins 45 ára að aldri. Frábær mynd. Einstaklega skemmtileg, fjörug, fyndin og viðburðarík ævintýra- og fjölskyldu- mynd um hinn tólf ára og hressa strák Alex sem fyrir tilviljun finnur sverðið Excalibur og dregur það úr steininum. Um leið vekur hann hina illu norn Morgönu til lífsins, en hún ætlar sér að komast yfir sverðið, hvað sem það kostar. Ævintýri/hasar Sannsögulegt Ævintýri Dragged Across Concrete Grami göldrótti Holmes & Watson Þegar lögreglumennirnir Brett Ridge- man og Anthony Lurasetti (Mel Gibson og Vince Vaughn) eru sendir í sex mánaða launalaust „leyfi“ fyrir að hafa gengið fullharkalega fram við síðustu handtöku ákveða þeir að gerast sjálfir ræningjar, enda hafa þeir bæði kunn- áttuna og þekkinguna sem til þarf! Terry er unglingspiltur sem hefur alist upp hjá ömmu sinni í London þar sem hún rekur skemmtigarð. Dag einn gerast þau undur að Terry er fyrir töfra fluttur yfir í ævintýraheim þar sem hann fær það verkefni að bjarga prinsessu og stöðva hinn göldrótta Grama sem hefur bannað alla hamingju í veröldinni. Snjallasti spæjari allra tíma, Sherlock Holmes, og hinn sauðtryggi aðstoðar- maður hans, læknirinn Watson, fá hér til úrlausnar morð sem ekki er búið að fremja og að sjálfsögðu er það prófessor Moriarty, erkióvinur Holmes, sem hefur fundið upp á þeim óskunda. Leysa þeir Sherlock og Watson gátuna í tíma? Spenna/sakamál Teiknimynd Gamanmynd The Favourite Fighting with My Family Suspiria The Favourite gerist á valdatíma Önnu Englandsdrottningar (1702–1714) og er hér blandað saman sannsögulegum atburðum og flugbeittum húmor sem verður frekar svartur á köflum. Útkoman er einstök mynd í alla staði sem kvik- myndaáhugafólk ætti alls ekki að láta fram hjá sér fara. Sönn saga glímudrottningarinnar Sar- ayu-Jade Bevis sem hóf atvinnuferil í glímu þrettán ára gömul og vann sig upp í bandarísku WWE-atvinnumanna- glímuna þar sem hún varð aðeins 21 árs að aldri yngsta konan til að vinna svokallaða Divas-glímukeppni. Frábær mynd með toppleikurum. Susie Bannion er bandarískur dansari sem kemur til Berlínar til að sækja um danshlutverk hjá hinu virta dansstúdíói Helenu Markos. Þar heillar hún einn helsta danshöfund heims, Madame Blanc, upp úr skónum og áður en varir er hún orðin aðaldansari stúdíósins. En hér býr meira að baki en sýnist! Gamandrama Gamandrama Tryllir Journeyman Sink or Swim Finding Your Feet Matty Burton er hnefaleikamaður sem á að baki farsælan feril en telur nú tíma til kominn að hætta þar sem hann er kominn á aldur. Hann samþykkir að berjast í síðasta sinn við öflugan mótherja þar sem miklir peningar eru í boði en fær þar á sig þungt högg sem á eftir að gjörbreyta lífi hans og fjölskyldu hans til frambúðar. Að synda eða sökkva er einstaklega skemmtileg og launfyndin gamanmynd um átta karla sem hafa hver um sig brennt ýmsar brýr að baki sér. Þeir fá aftur trú bæði á lífið og mátt sinn og megin þegar þeir byrja að æfa saman samhæft sund undir handleiðslu tveggja fyrrverandi afrekskvenna í íþróttinni. Þegar Sandra kemst að því að eiginmaður hennar til 35 ára hefur átt í ástarsambandi við vinkonu hennar pakkar hún niður í hvelli og flytur til systur sinnar sem býr í London. Ekki líður á löngu uns Sandra tekur að átta sig á að það er engin ástæða til að leggja árar í bát heldur nota tækifærið til að lifa lífinu til fulls! Drama Sannsögulegt Gamandrama Myndir mánaðarins