Myndir mánaðarins MM Júní 2019 DVD VOD Tleikir | Page 20

Ralf rústar Internetinu Ferðalag sem á engan sinn líka! Sex ár eru liðin frá því að við hittum síðast hinn ljúfa og naut- sterka Ralf sem nú lendir í nýjum ævintýrum ásamt vinkonu sinni, Vannellópu sykursætu, þegar sérkennileg bilun í leik- tækjasalnum þar sem þau vinna verður til þess að þau fara í einstaklega viðburðaríkt ferðalag á Internetinu! Disney-teiknimyndin Ralf rústar Internetinu er vægast sagt frábær skemmtun frá upphafi til enda. Fyrir utan ævintýrin sem þau Ralf og Vannellópa sykursæta lenda í á ferðalaginu hitta þau fjölmarga merka karaktera og líka persónur úr öðrum þekktum ævintýrum eins og Mjallhvíti, Fríðu, Öskubusku, Þyrnirós, Elsu, Jasmín, Múlan, Pocahontas, Aríel, Groot, C3PO, Bósa ljósár, Eyrnaslapa og fleiri. Myndin er talsett á íslensku af landsliði íslenskra leikara og kemur einnig út á ensku þar sem þau John C. Reilly, Sarah Silverman, Gal Gadot, Kristen Bell, Mandy Moore, Alan Tudyk, Idina Menzel, Alfred Molina og margir fleiri ljá persónunum raddir sínar. En hvort sem fólk kýs að sjá íslensku eða ensku útgáfuna er óhætt að lofa því að Ralf rústar Internetinu er afar fyndin og fjörug skemmtun fyrir alla. Ralf rústar Internetinu Teiknimynd VOD 106 mín Íslensk talsetning: Hjálmar Hjálmarsson, Vigdís Pálsdóttir, Íris Tanja Flygenring, Salka Sól Eyfeld, Ævar Þór Benediktsson, Bergur Ingólfsson, Selma Lóa Björnsdóttir, Álfrún Örnólfsdóttir, Ágústa Eva Erlendsdóttir, Björgvin Franz Gíslason, Þórhallur Sigurðsson og fleiri Leikstjórn: Rósa Guðný Þórsdóttir Útgefandi: Síminn og Vodafone 20. júní 20 Myndir mánaðarins