Myndir mánaðarins MM Júní 2019 DVD VOD Tleikir | Page 17

The Lego Movie 2: The Second Part al Hemmi bjargar heiminum Það eru liðin fimm ár síðan viðkunnanlegi verkakubburinn Hemmi bjargaði heimaborg sinni frá tortímingu með aðstoð vina sinna sem sumir hverjir voru gæddir ofurkröftum. Nú þarf Hemmi að taka á honum stóra sínum á ný þegar bestu vinkonu hans, Lísu, er rænt af stórskrítnum geimverum ... sem þýðir auðvitað að Hemmi verður að fljúga út í geim og bjarga henni. The Lego Movie, sem kom út árið 2015 er á meðal skemmtilegustu mynda sem gerðar hafa verið enda naut hún mikilla vinsælda um allan heim hjá fólki á öllum aldri. Óhætt er að fullyrða að þessi nýja Lego-mynd gefi henni ekkert eftir hvað húmor og skemmtilegheit varðar, en í henni ferðast hinn ávallt bjartsýni Hemmi út í óravíddir alheimsins þar sem margvíslegar áskoranir bíða bæði hans og nýrra og gamalla vina sem láta að sjálfsögðu ekki sitt eftir liggja ... The Lego Movie 2 Þrátt fyrir að hafa mjög ólíka sýn á nánast allt eru þau Hemmi og Lísa bestu vinir. Á þau tryggðarbönd reynir þegar Lísu er rænt af geim- verum og Hemmi verður að ferðast út í geim til að bjarga henni. The Second Part Kubbamynd VOD 106 mín Punktar .................................................... Myndin er að sjálfsögðu talsett á íslensku eins og sjá má á kredit- listanum hér til vinstri en í ensku útgáfunni eru það m.a. þau Chris Pratt, Elizabeth Banks, Will Arnett, Tiffany Haddish, Alison Brie, Will Ferrell, Channing Tatum, Jonah Hill, Maya Rudolph, Nick Offerman, Stephanie Beatriz, Jason Momoa, Gal Gadot, Margot Robbie, Brook- lynn Prince og Bruce Willis sem ljá persónunum raddir sínar. l Íslensk talsetning: Sigurður Þór Óskarsson, Salka Sól Eyfeld, Bryndís Ásmundsdóttir, Orri Huginn Ágústsson, Aldís Amah Hamilton, Steinn Ármann Magnússon, Sigríður Eyrún Friðriksdóttir, Oddur Júlíusson, Eyþór Ingi Gunnlaugsson, Björgvin Franz Gíslason, Júlía Guðrún Lovísa Henje, Lára Björk Hall, Kolfinna Orradóttir, Þórunn Erna Clausen og m.fl. Leikstjórn: Rósa Guðný Þórsdóttir Útgefandi: Síminn og Vodafone 17. júní Fyrir utan þau Hemma og Lísu mæta fjölmargar af persónum fyrri myndarinnar aftur til leiks í The Lego Movie 2 og margar nýjar, þar á meðal persónur utan úr geimnum sem eru hver annarri skrítnari. Hinn snjalli og úrræðagóði Rex hættuspil (Rex Dangervest í ensku útgáfunni) kemur mikið við sögu en honum svipar grunsamlega mikið til Peters Quill úr Guardians of the Galaxy-myndunum. Myndir mánaðarins 17