Myndir mánaðarins MM Júní 2019 DVD VOD Tleikir | Page 11

Ástríkur og leyndardómur töfradrykkjarins Leitin að seiðkarlinum Eftir að Sjóðríkur dettur niður úr tré og fótbrotnar þar sem hann er að ná í mistiltein með hinni gullnu sigð tilkynnir hann bæjarbúum að tími sé til kominn fyrir hann að draga sig í hlé og að finna þurfi yngri seiðkarl til að elda töfradrykkinn sem komið hefur í veg fyrir að Rómverjar hertaki Gaulverjabæ. Að sjálfsögðu þurfa þeir Ástríkur og Steinríkur að fara í málið. Ástríkur og leyndardómur töfradrykkjarins er eftir þá sömu og gerðu síðustu Ástríks-mynd, hina þrælskemmtilegu Ástríkur á Goðabakka, sem var frumsýnd fyrir fjórum árum. Munurinn er sá að á meðan sú mynd var gerð eftir einni af sögum þeirra Renés Goscinny og Alberts Uderzo þá er þetta ný saga eftir Alexandre Astier sem einnig skrifaði handritið og leikstýrir ásamt Louis Clichy. Myndin hlaut afar góða dóma og mikla aðsókn í kvikmyndahúsum, enda þykir hún einstaklega fyndin og alveg frábær fjölskylduskemmtun. Ástríkur og leyndardómur töfradrykkjarins Teiknimynd DVD VOD 104 mín Íslensk talsetning: Sigurður Sigurjónsson, Þórhallur Sigurðsson (Laddi), Jóhann Sigurðarson, Hjálmar Hjálmarsson, Steinn Ármann Magnússon, Örn Árnason, Eyþór Ingi Gunnlaugsson, Orri Huginn Ágústsson, Elísabet Ormslev, Ævar Þór Benediktsson, Íris Tanja Flygenring, Viktor Már Bjarnason, Einar Örn Einarsson, Magnús Ólafsson, Selma Rún Rúnarsdóttir, Hjalti Rúnar Jónsson og Bjarki Kristjánsson Leikstjórn: Sigurður Árni Ólason Þýðandi: Oddný Sen Talsetning: Myndform ehf. Útgefandi: Myndform 6. júní Myndir mánaðarins 11