Myndir mánaðarins MM Júní 2019 Bíóhluti | страница 28
Yesterday
Hefurðu heyrt um Bítlana?
Yesterday fjallar um tónlistarmanninn Jack Malik sem er alveg
að gefast upp á að hafa í sig og á með tónlist þegar hann verður
kvöld eitt fyrir bíl og missir meðvitund. Þegar hann vaknar er
hann kominn inn í einhvers konar hliðarveröld þar sem Bítlarnir
voru ekki til og enginn þekkir tónlist þeirra – nema hann.
Yesterday er nýjasta mynd Óskarsverðlaunaleikstjórans Dannys
Boyle og er gerð eftir handriti Richards Curtis sem m.a. á að baki
handrit og leikstjórn myndanna Love Actually, The Boat That Rocked
og About Time auk þess sem hann skrifaði handritin að rómantísku
gamanmyndunum Four Weddings and a Funeral og Notting Hill.
Þótt Jack reyni til að byrja með að segja fólki að lög eins og Yesterday
og I Want to Hold Your Hand séu eftir Bítlana en ekki hann þá þýðir
það ekki neitt því um þá hefur enginn heyrt áður og því síður heyrt
þessi lög. Þetta leiðir fljótlega til þess að Jack verður heimsfrægur og
eftirsóttur, bæði af aðdáendum og tónlistarútgefendum. En frægð-
inni fylgir auðvitað falskur tónn sem Jack getur ómögulega hrist úr
minni sér – en hvað getur hann gert þegar enginn trúir honum?
Yesterday
Rómantík / Tónlist / Gamanmynd
Aldurstakmark ekki fyrirliggjandi fyrir prentun
112
mín
Aðalhlutverk: Himesh Patel, Lily James, Kate McKinnon, Ana de
Armas, James Corden, Ed Sheeran, Lamorne Morris og Sophia Di
Martino Leikstjórn: Danny Boyle Bíó: Laugarásbíó, Smárabíó,
Háskólabíó, Sambíóin Kringlunni og Keflavík, og Borgarbíó Akureyri
Frumsýnd 26. júní
Veistu svarið?
Leikstjórinn Danny Boyle á fjölbreyttan feril að baki
enda hafa verkefni hans spannað allt frá æsilegum
hrollvekjum upp í léttar, rómantískar gamanmyndir
eins og Yesterday. En fyrir leikstjórn hvaða myndar
hlaut hann Óskarsverðlaunin árið 2009?
Myndir mánaðarins
Punktar ....................................................
Ed Sheeran leikur sjálfan sig í Yesterday, en hermt
er að hann hafi einnig átt stóran þátt í fjölbreyttu
lagavali myndarinnar auk þess að semja dálítið af
tónlistinni í henni. Ed hefur látið hafa það eftir sér
að hans eigin lagasmíðar séu að stóru leyti inn-
blásnar af lagasmíðum Bítlanna.
l
Lily James leikur kennarann Ellie sem hefur lengi verið skotin
í Jack en glímir við að hann hefur eiginlega aldrei fattað það.
Slumdog Millionaire.
28
Það er breski leikarinn Himesh Patel sem leikur hér Jack Malik í sinni
fyrstu bíómynd en hann er þekktur fyrir leik í ýmsum breskum sjón-
varpsmyndum og þáttum, m.a. sem Tamwar Masood í Eastenders.