X-Men: Dark Phoenix
Allir eiga sér aðra hlið
Þegar alvarleg bilun í geimskutlu ógnar lífi geimfaranna í henni
fær NASA Charles Xavier til að setja saman björgunarteymi úr
hópi X-manna. Aðgerðin heppnast með þeirri undantekningu
að Jean Grey verður fyrir gríðarlega öflugri sólareldingu sem
hefði átt að ganga af henni dauðri en kallar þess í stað fram í
henni nýja og illa útgáfu af persónu sem nefnist Dark Phoenix.
X-Men: Dark Phoenix er tólfta X-Men-myndin í seríunni sem Bryan
Singer hleypti af stokkunum árið 2000 og um leið sjöunda myndin
í meginsögunni, þ.e. fyrir utan hliðarmyndirnar X-Men Origins:
Wolverine, The Wolverine, Logan og Deadpool-myndirnar tvær. Hún
gerist árið 1992, nokkrum árum eftir atburðina í X-Men Apocalypse,
þegar X-fólkið hefur um nokkurt skeið lifað í sátt og samlyndi við
aðra Jarðarbúa og um leið gegnt mikilvægu hlutverki í samfélaginu
þar sem hæfileikar þeirra hafa verið notaðir til góðs. Því mikilvæga
jafnvægi er nú ógnað þegar Dark Phoenix yfirtekur líkama Jean
Grey enda býr hún m.a. yfir ógnarkrafti sólarinnar og er sterkari en
allir hinir X-mennirnir til samans. Hvað er til ráða gegn slíkri ógn?
X-Men: Dark Phoenix
Ofurhetjur / Ævintýri
Það er enska leikkonan Sophie Turner sem leikur Jean Grey eins
og hún gerði í X-Men: Apocalypse, en Sophie er einnig þekkt fyrir
að leika Sönsu Stark í Game of Thrones- sjónvarpsþáttunum.
114
mín
Aðalhlutverk: Sophie Turner, Jessica Chastain, James McAvoy, Evan
Peters, Nicholas Hoult, Jennifer Lawrence, Michael Fassbender, Kodi
Smit-McPhee, Tye Sheridan og Alexandra Shipp Leikstjórn: Simon
Kinberg Bíó: Smárabíó, Háskólabíó, Sambíóin Álfabakka og Egilshöll,
og Borgarbíó Akureyri
Frumsýnd 5. júní
Punktar ....................................................
Sagan í myndinni er byggð á einni vinsælustu X-Men-sögunni,
The Dark Phoenix Saga, sem kom upphaflega út árið 1980 og var í
nokkrum bindum. Í hana hefur lauslega verið vísað í fyrri mynd-
unum en hér hefur hún verið kvikmynduð í heild sinni í fyrsta sinn.
l
Hermt er að The Dark Phoenix sé síðasta myndin í X-Men-sögunni
sem hófst árið 2000 og sagði frá þeim persónum og leikendum sem
kvikmyndaáhugafólk hefur síðan kynnst vel og náið á síðastliðnum
19 árum. Ný X-Men-saga mun svo væntanlega hefjast frá og með
myndinni The New Mutants sem frumsýnd verður í apríl á næsta ári.
l
Leikstjóri og handritshöfundur myndarinnar, Simon Kinberg, ræðir
hér við Michael Fassbender fyrir tökur á einu atriði myndarinnar.
Veistu svarið?
Jean Grey var eins og flestir aðdáendur X-Men-sagn-
anna vita leikin af Famke Janssen í fyrri myndunum
áður en Sophie Turner tók við hlutverki hennar í
Apocalypse. Færri vita kannski að eiginmaður hennar
er X-maðurinn Scott Summers, öðru nafni ...?
Jessica Chastain leikur dularfulla geimveru sem gerir hvað hún getur
til að fá Phoenix til að snúast gegn félögum sínum og mannkyninu.
Cyclops.
14
Myndir mánaðarins